154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[15:45]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Ég deili þeim áhyggjum sem ég les úr orðum hv. þingmanns. Í umsögnum sem bárust eru augljósar áhyggjur af fjármögnun þessara sjóða, bæði af heildarfjármögnun og skiptingu fjármuna. Það eina sem kemur fram í greinargerð með frumvarpinu þar sem þessu svarað er ein setning. Ég ætla að lesa hana upp, með leyfi forseta:

„Í framkvæmd verður gert ráð fyrir að því fjármagni sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunar hverju sinni verði skipt niður á mismunandi málaflokka sjóðsins.“ — Punktur.

Það er ekkert sem kemur fram í greinargerðinni eða í öðrum umræðum um þetta mál sem linar áhyggjur af því annars vegar að fjármögnunin verði ekki nægileg og síðan hver skipting hennar verður. Þessu tengt má nefna að loftslagssjóður fær um 230 millj. kr. og Orkusjóður 8,6 milljarða. Þetta sýnir auðvitað áherslurnar. Ég hef áhyggjur af undirliggjandi hugmyndafræðinni þar sem það er ákveðin afneitun gagnvart loftslagsbreytingum og ábyrgð mannfólksins á þeim innan Sjálfstæðisflokksins sem ég held að liti rosalega mikið stefnu hans og þar með stefnu þessarar ríkisstjórnar. Ég hef miklar áhyggjur af þessu. Ég hef líka áhyggjur af því að loftslagsaðgerðir, orkuskipti og annað gangi minnst út á það, hvað eigum við að segja, að reyna að verða við þeim ráðleggingum sem byggðar eru á vísindalegum gögnum um hvað þarf að gera og hvað hægt er að gera til að snúa þróuninni við og stöðva hana. Við byrjum á að stöðva hana og snúum henni síðan við. Ég hef áhyggjur af því að það sé engin meðvitund um alvarleika málsins innan ríkisstjórnarinnar.