154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[15:48]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns hvað viðkemur þeirri forystu eða í raun því forystuleysi sem nú er innan ríkisstjórnar þegar kemur að loftslagsmálum. Við nálgumst þetta bara með öðrum hætti. Ég hef líka lesið margar skýrslur frá ýmsum, bæði hagsmunaaðilum og sérfræðingum, sem undirstrika að hægt er að ná í orku með mjög mismunandi hætti. Við getum nýtt tæknina betur. Það er hægt að gera ýmsa þætti eins og að víkka út þær veitur sem eru fyrir til þess að nýta betur m.a. kraftinn sem þar er, en alls staðar er verið að kalla á að við þurfum að ná í meiri orku og taka ákvarðanir um það þannig að við stöndum ekki frammi fyrir hugsanlegum orkuskorti, eins og við höfum gert að einhverju leyti á síðustu misserum, gagnvart almenningi allt fram til ársins 2035. Við í Viðreisn erum að kalla eftir ákveðnari skrefum ríkisstjórnarinnar í þessa veru en ég hef áhyggjur af því að samsetning ríkisstjórnarinnar leiði til þess að við verðum áfram í kyrrstöðu í þessum málaflokki eins og öllum öðrum. Við erum að upplifa kyrrstöðu í hvaða málaflokki sem er í rauninni. Þegar hæstv. umhverfisráðherra kemur og kynnir þetta mál um Orkusjóð þá eru þetta bara einhver fögur orð en innihaldið er síðan ansi rýrt. Og þegar við rýnum líka í orð hæstv. fjármálaráðherra um það sem ég vil reyndar fagna, um að endurskoða sjóðina og endurskoða úthlutanir — það þarf að sýna ákveðna hagræðingu í rekstri og líta á þetta með nálaraugagleraugum til þess að gæta meira aðhalds — hvaða þýðingu hafa þá þau sjónarmið sem við heyrum frá fjármálaráðherra einmitt í þessu máli sem við ræðum hér? Það kemur ekki á óvart að mér finnst ekki fara saman hljóð og mynd hjá ríkisstjórninni í þessu máli eins og svo mörgum öðrum.