Orkusjóður.
Forseti. Það sannarlega gegnsýrir allt sem ríkisstjórnin hefur verið að gera undanfarin ár, og við munum ræða nánar hér á eftir þegar við ræðum tillögu um að þingið lýsi vantrausti á ríkisstjórnina, ekki síst út af þessu sem hv. þingmaður talar um, það sem hv. þingmaður kallar kyrrstöðu og er ég sammála henni um. Ég tel það mjög alvarlega kyrrstöðu þegar ástandið í heiminum, ástandið í loftslagsmálum ekki síst og mörgu öðru kallar á aðgerðir og frekar róttækar breytingar og róttæka umbreytingu á okkar hugsun í öllu sem við gerum og á allri stefnu stjórnvalda. Þar heitir það kyrrstaða sem hæstv. sitjandi ríkisstjórn kallar pólitískan stöðugleika. Þau tala um að ríkisstjórnin endurspegli breiddina á pólitíska sviðinu. Það gæti komið sér vel. Það er alveg hægt að ímynda sér kostina sem fælust í slíkri ríkisstjórn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef ríkisstjórnin gæti unnið saman væri einhver grundvöllur fyrir einhvers konar samstarfi til að ná árangri. Við sjáum það ekki hjá þessari ríkisstjórn. Eini samstarfsgrundvöllur þessarar ríkisstjórnar er nákvæmlega eins og hv. þingmaður segir, kyrrstaða. Þau kalla það pólitískan stöðugleika. Við erum bara að horfa á stöðuga verðbólgu, stöðuga hækkun vaxta, stöðugt hærra húsnæðisverð og annað. Pólitískur stöðugleiki af þessu tagi er afturhald og kyrrstaða sem kemur í veg fyrir að við leysum þær áskoranir og þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir. Ég er sammála hv. þingmanni um þetta og held að þetta sé mjög alvarlegt mál. Ég held að þetta geri þessa ríkisstjórn óstarfhæfa. Ég held að þetta geri hana ekki bara gagnslausa, eins og ég hafði áhyggjur af í upphafi, heldur sé ástandið orðið skaðlegt, sérstaklega eftir þennan langa tíma þar sem hún hefur ekki gert neitt í ákveðnum málum þegar hún hefði getað gert svo mikið á þessu sex og hálfa ári. (Forseti hringir.) Ég tel það brýna þörf fyrir hagsmuni lands og þjóðar að koma þessari ríkisstjórn frá.