154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[15:52]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Mig langar rétt aðeins að nota þessa síðari ræðu mína til að fara yfir fjárhagslegar forsendur þeirra sjóða sem lagt er til að steypa saman í einn, vegna þess að það getur auðvitað haft áhrif á hvernig gengur með sameininguna hver staða sjóðanna er þegar þeir eru sameinaðir. Eins og kom fram í andsvörum áðan eru á fjárlögum yfirstandandi árs 8,6 milljarðar sem renna í gegnum Orkusjóð en 230 milljónir í gegnum loftslagssjóð. Hér er töluverður stærðarmunur á sjóðum. Þess vegna er það ekki eitthvað sem við ættum að afskrifa sem ómálefnalega gagnrýni að þarna geti þau sjónarmið sem loftslagssjóður hefur en Orkusjóður hefur kannski ekki orðið undir með áformaðri sameiningu.

Þetta finnst mér skipta dálitlu máli í ljósi þess að með réttu ætti loftslagssjóður að vera mun stærri. Loftslagssjóði er upphaflega komið á í tengslum við innleiðingu á sameiginlegum skuldbindingum Íslands og Evrópusambandsins gagnvart loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna þar sem ETS-kerfinu svokallaða, uppboðskerfi á losunarheimildum gróðurhúsalofttegunda, var komið á ýmsan staðbundinn iðnað og náði síðar líka yfir flug. ETS-kerfið var nokkur ár að keyra sig almennilega í gang en þegar það komst af stað varð þarna til ákveðin verðmyndun. Þarna myndaðist verðmiði á losun gróðurhúsalofttegunda og er tonnið af koltvísýringi að seljast á þessum markaði á 80–120 evrur eftir dagsformi þessa dagana. Ríki þar sem þessi staðbundni iðnaður og þetta flug hefur heimahöfn eiga samkvæmt regluverkinu að njóta ábatans af þessu kerfi að hluta til. Íslenska ríkið hefur því á undanförnum árum haft umtalsverðar tekjur af uppboði losunarheimilda. Samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytis er búist við að á næstu árum haldist tekjurnar einhvers staðar á bilinu 3–5 milljarðar á ári sem samkvæmt upphaflegri hugmynd þessa regluverks og samkvæmt því hvernig ESB-ríki innleiða það eiga að renna til loftslagsvænna verkefna, oft í gegnum hliðstæða sjóði við loftslagssjóðinn okkar. Hins vegar hefur það gerst að algjört rof hefur orðið á milli þeirra tekna sem ríkið hefur og þeirra fjármuna sem eru látnir renna inn í loftslagssjóð, vegna þess að hér þarf ekki að útfæra þetta nákvæmlega eins og ESB leggur málið upp. Sjóður sem í dag telur 230 milljónir ætti með réttu að vera á bilinu 3–5 milljarðar á ári. Þar með værum við komin með sameiningu tveggja jafningja til umræðu hér í dag. Sú er hins vegar ekki raunin.

En hvað er þá ríkisstjórnin að gera með allar þessar gríðarlegu tekjur af uppboði losunarheimilda? Skemmst er frá að segja, forseti, að ríkisstjórnin er að gefa þær frá sér í niðurgreiðslu á bruna jarðefnaeldsneytis annars vegar og í yfirhylmingu á töpuðum markmiðum hins vegar. Í fjármálaáætlun kom fram í gær, þegar við lásum hana, að reiknað er með að verðmæti losunarheimilda sem verður ráðstafað til flugfélaga verði á næstu tveimur árum samtals 3,1 milljarður. Þetta er peningur sem var ákveðið að veita í það sem var kallað sérlausn gagnvart Evrópusambandinu til að flugfélög gætu áfram fengið endurgjaldslausar losunarheimildir, en endurgjaldslausar losunarheimildir þýða að almenningur borgar. Það kom held ég ekki skýrt fram hjá hæstv. ríkisstjórn þegar mælt var fyrir málinu í haust. 3,1 milljarður er tekinn úr mögulegum tekjum ríkisins og millifærður á reikning flugfélaga, (Forseti hringir.) vel að merkja ekki bara íslenskra flugfélaga til að vernda störf innan þeirra heldur allra flugfélaga sem fljúga til Íslands. Er það góð ráðstöfun á peningum sem eiga að renna til loftslagsvænna lausna að niðurgreiða flugferðir?