Orkusjóður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir ræðuna. Býsna áhugaverð umræða var um þetta mál í gærkvöldi og heldur hún hér áfram. Þó að það megi að ákveðnu leyti segja að þetta sé tiltölulega einfalt mál er það engu að síður angi af hinni stóru spurningu sem er sú á hvaða vegferð þessi ríkisstjórn er í málefnum sem varða þær ógnir sem steðja að okkur í loftslagsmálum, getu stjórnvalda til að standa við þau fyrirheit sem þau gáfu strax í upphafi þessa stjórnarsamstarfs, hvernig til hefur tekist að uppfylla þær væntingar og kannski ekki síst hvernig þau hyggjast nýta tímann sem eftir er af kjörtímabilinu nú þegar þessir þrír flokkar, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Vinstrihreyfingin – grænt framboð, hafa endurnýjað heitin enn og aftur.
Þegar ríkisstjórnin, sem nú er undir forystu Bjarna Benediktssonar, tók boltann talaði hún um þrjú mál sem hún ætlaði sér að beina sjónum að. Það fyrsta er verðbólgan og það að ná henni niður. Þó fyrr hefði verið tel ég að flest okkar geti tekið undir. Síðan er það að verja landamærin, nokkuð sem er enn tiltölulega óskýrt, og svo er það að finna orku. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, sem hefur verið ötull talsmaður aðgerða í þágu loftslagsins: Saknar hann ekki þess að þau mál hefðu komist á blað á forgangslista ríkisstjórnarinnar? (Forseti hringir.) Hvað sæi hann helst fyrir sér að það hefði mátt vera ef einhver í þessari ríkisstjórn hugsaði um þau mál?