Orkusjóður.
Herra forseti. Fyrst aðeins varðandi áhyggjur fólks af þeim verkefnum sem gætu glatast við sameiningu þessara sjóða. Það var alveg skýrt af umsögnum á fyrri stigum að t.d. því hlutverki sem loftslagssjóður hefur í dag varðandi fræðslu er ekki vel fyrir komið í frumvarpinu eins og það liggur fyrir í dag. Þó er það mögulega ein mikilvægasta aðgerðin þegar kemur að því að ná tökum á loftslagsvandanum, að fræða almenning, fræða börn og ungmenni og tryggja að komandi kynslóðir þekki þau verkfæri sem best gagnast í baráttunni fyrir betri heimi. Það er ekki heldur minnst á hringrásarhagkerfið sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir minnti okkur á hér áðan að Viðreisn hefði fyrir síðustu kosningar fengið hæstu einkunn allra flokka fyrir, þar sem við í Pírötum fengum hæstu heildareinkunnina. Svona getum við rifjað upp að hér eru að ræða saman fulltrúar flokka sem settu raunverulegan metnað í þessar stefnur.
Ríkisstjórnin er náttúrlega með einhverja þráhyggju fyrir því, sem birtist best í máli hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að hér hafi verið einhver brjáluð kyrrstaða í orkumálum á síðustu árum þegar raunin er sú að orkuframleiðsla hefur aukist um rúmar 2 TWst á síðasta áratug. Þetta hefur ekki verið einhver Kárahnjúkavirkjun hér og þar heldur bara hægur og sígandi vöxtur. Ég held að þessi umræða sé einmitt til þess að slá ryki í augu fólks varðandi hinn undirliggjandi raunverulega vanda sem er stefnuleysi ríkisstjórnarinnar þegar kemur að beinum aðgerðum í loftslagsmálum. (Forseti hringir.) Það sést best í fjármálaáætlun á því að á milli ára lækka framlög úr 30 í 25 milljarða á ári og haldast síðan flöt út tímabil fjármálaáætlunar. (Forseti hringir.) Það er engin sókn í loftslagsmálum í þessari fjármálaáætlun frekar en nokkurn tímann hefur verið hjá þessari ríkisstjórn.