Orkusjóður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Þetta er nefnilega mjög áhugavert samtal. Það er rétt upprifjun að við erum bæði tvö fulltrúar flokka sem lögðu mikla vinnu í stefnu um hringrásarhagkerfið, sem ég hygg að sé mikilvægasti þátturinn þegar kemur að vinnu í þágu loftslagsmála, þ.e. breyttar neysluvenjur og hagkvæmir hvatar sem síðan smita út frá sér og valda annars konar jákvæðum áhrifum inn í efnahagslífið. Ekki veitir nú af eftir síðustu ár.
Þessi punktur sem hv. þingmaður nefnir varðandi fræðsluna spilar náttúrlega nákvæmlega inn í þessa umræðu og orðræðu um hringrásarhagkerfið vegna þess að við þurfum á þessari fræðslu að halda, ekki síst eldra fólk, leyfi ég mér að segja. Yngra fólk sækir sér þessa hluti og hefur verið alið upp til að horfa á heiminn sem það á að erfa með þessum gleraugum. Það erum við sem eldri erum sem þurfum á fræðslunni að halda og því miður er það gjarnan svo að það er líka frá okkur sem mótspyrnan kemur einna helst, ef marka má alla vega umræðuna eins og hún birtist oft í samfélaginu.
Mig langar að spyrja, vegna þess að hv. þingmaður situr í umhverfis- og samgöngunefnd og ég treysti því og veit að hann mun halda þessum málefnum um fræðsluna á lofti þar: Hverjar telur hann líkurnar á að það sjónarmið nái inn, að við náum að kveikja þannig í stjórnarmeirihlutanum þar og á þingi að hann átti sig á mikilvægi þess að þessi þáttur týnist ekki í vegferðinni sem lýtur að sameiningu stofnana, (Forseti hringir.) sem ef vel er að staðið er sannarlega ekki neikvæð að mínu mati, og almennt í vinnu nefndarinnar að málefnum sem varða loftslagið?