154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[16:06]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ekkert allt of bjartsýnn á að það sjónarmið að bæta fræðslunni inn í markmið sameinaðs sjóðs nái fram að ganga hjá meiri hlutanum vegna þess að mér finnst stjórnarflokkarnir allt of oft einblína á tæknilegu lausnirnar. Þau sjá virkjanir, þau sjá rafbíla en ekki einföldu lausnirnar sem eru rétt fyrir framan okkur og byggja allar á einhverju sem við þekkjum mjög vel. Tökum t.d. þann hluta losunar sem er á beinni ábyrgð stjórnvalda. Þar þurfa stjórnvöld að beita sértækum aðgerðum til að ná fram samdrætti. Þriðjungur af þeirri köku er vegasamgöngur. Hvernig drögum við úr losun frá vegasamgöngum? Það er einfaldasta verkefni í heimi þannig séð. Við þurfum bara að fá fólk til að keyra minna, þurfum að fækka bílum og draga úr eknum kílómetrum. Við þurfum að fá fólk til að taka strætó, labba og hjóla. Það þarf enga svakalega vísindamenn til að útfæra þetta. Við erum með stór verkefni eins og borgarlínuna á áætlun og þyrftum helst að flýta henni ef við getum. Í millitíðinni væri t.d. hægt — tökum dæmi og nefnum tölur: Á síðasta ári var ívilnunarkerfi til rafbíla breytt og var kominn tími til að hemja aðeins útgjöldin sem fóru í þann þátt, en samhliða því lækkuðu útgjöldin um 6 milljarða. 6 milljarðar er einmitt sami peningur og það myndi kosta að rafvæða strætóflotann á höfuðborgarsvæðinu, byggja upp alla innviði og kaupa strætisvagna til að keyra útblásturslaust um höfuðborgarsvæðið. Það þyrfti 1 eða 2 milljarða til að (Forseti hringir.) núlla út kostnað við tímabilskort í strætó og auka þar með notkun á þeim fararkosti. Fyrir jól ætlaði ríkisstjórnin að fella niður ívilnun til reiðhjólakaupa sem kostaði samt ekki nema hálfan milljarð. (Forseti hringir.) Þar hefði frekar átt að margfalda stuðninginn til að fá allt þetta viljuga fólk til að kaupa flott hjól sem duga allt árið sem samgöngutæki í staðinn fyrir bíl. (Forseti hringir.) Tækifærin eru þarna til að sækja þau en ríkisstjórnin leggur ekki í það.

(Forseti (OH): Forseti minnir hv. þm. Andrés Inga Jónsson á að virða ræðutíma.)