154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[16:09]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegur forseti. Ég finn mig eiginlega knúinn til að vekja máls á umræðunni sem hefur átt sér stað í þessu máli. Eins og við mátti búast í gær stóð þingfundur lengi yfir. Vinnudagurinn hér á þingi á það til að vera langur, sérstaklega á þriðjudögum. Við kvörtum ekki yfir því, við stöndum bara okkar plikt. Mér þótti hins vegar örla á því í máli hæstv. ráðherra að hann væri að einhverju leyti ósáttur við umræðuna, að við værum að ræða málin, mögulega vegna þess að klukkan var orðin margt. Við hljótum að eiga fullt tilkall til þess að ræða málin út frá málefnum. Til þess erum við hér. Ég vil samt benda á að við í Pírötum stjórnum ekki dagskrá þingfunda, þær ákvarðanir eru teknar annars staðar. Við hins vegar nýtum okkur það svigrúm sem dagskráin leyfir til málefnalegrar umræðu. Getur einhver raunverulega verið ósáttur við það?

Ég finn mig knúinn til að nefna ákveðna þætti sem komu fram í umræðunni í máli hæstv. ráðherra sem ég eiginlega hlýt að hafa misskilið eitthvað. Í umræðu um þetta mál í gær vísaði hæstv. ráðherra ítrekað til þess hvaða atkvæði Píratar og aðrir hv. þingmenn greiddu um rammaáætlun. Nú tók ég ekki þátt í atkvæðagreiðslunni um rammaáætlun en við stutta yfirferð sýnist mér málið einfaldlega ekki hafa verið gott. Það vefst ekkert fyrir okkur að styðja góð mál og þá er alveg sama hvaðan þau koma. Séu málin góð erum við alveg til í að styðja þau. Tilvera okkar hér á þingi snýst mun frekar um það hvort við vinnum þeim málefnum sem við stöndum fyrir gagn, óháð því hvort við fáum eitthvert sérstakt klapp á bakið fyrir það frá hæstv. ráðherrum, hv. þingmönnum eða kjósendum. Að taka þátt í starfinu á að snúast um að vinna þjóðinni gagn. Þess vegna erum við hér.

Hæstv. ráðherra sakaði okkur Pírata um að vera á móti grænni orku vegna þess að við styddum ekki rammaáætlun, sem kemur mögulega úr hörðustu átt því að við vitum jú mætavel hvað verður um þau mál sem koma frá stjórnarandstöðu. Þau sem yfirhöfuð komast í nefnd komast sjaldnast úr henni og fari svo komast þau fæst ef nokkur til afgreiðslu. Og ríkisstjórnin klárar varla sín eigin mál, jafnvel þótt lítil mótstaða sé við þau frá stjórnarandstöðu. Mér sýnist nefnilega eins og staðan er nú að hér starfi eiginlega þrjár ríkisstjórnir, í raun þrjár minnihlutastjórnir sem gætu, ef þær raunverulega vildu ná árangri, unnið með minni hlutanum að því að koma málum í gegn. Slíkt kallar auðvitað á það að gefa minni hlutanum einhverja aðkomu að málunum og það myndi kalla á samráð um málin. Sé áhugi á samstöðu er það sjálfsagt. Hins vegar frábið ég mér túlkun hæstv. ráðherra að vegna þess að við séum ekki til í að fórna svæðum sem ætti að vernda þá séum við á móti grænum orkukostum. Þvílíkt og annað eins, að leyfa sér að dæma loftslagsstefnu Pírata út frá því hvernig við greiðum atkvæði um virkjunaráætlanir. Ég greiddi ekki atkvæði um áætlunina en get ekki annað en tekið undir hvernig flokkssystkini mín greiddu atkvæði og vek sérstaklega athygli á því að gerð var breytingartillaga um að taka þessi viðkvæmustu svæði út. Þessar breytingartillaga var fyrirsjáanlega felld. Það er eðli þess að starfa í minnihlutastjórn að þurfa að gera málamiðlanir og leita stuðnings við mál. Við getum ekki gefið hæstv. ráðherra neinn afslátt af því, né heldur er það á okkar ábyrgð að hér starfi þrjár minnihlutastjórnir. Hæstv. ráðherra og aðrir hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn verða að axla þá ábyrgð. Það gerum við í Pírötum ekki.

Hæstv. ráðherra vék í umræðunni í gær einnig að orkuskiptum og mikilvægi þeirra og þá sérstaklega rafmagnsbíla. Hér er annað gott dæmi um mál sem hefði getað batnað með því að fá inn fleiri sjónarmið. Verkefni orkuskipta í bílaflotanum er bara ekki sjálfbært, eins og sést á því hvað gerist þegar ívilnunum sleppir; sala rafmagnsbíla hrynur og með því áhugi bílasala á að bjóða upp á rafmagnsbíla, forsendur innviðaaukningar hverfa og fari svo er hætt við að við sitjum uppi með verkefni sem tekur alls ekki á vandamálinu sem við þurfum að leysa og því er ætlað að leysa. Við Píratar erum alls ekkert á móti því að auka hlut rafbíla. Það er eðlilegur hluti af því að umbreyta þjóðfélaginu í þá átt að takast á við losun gróðurhúsalofttegunda. Við viljum bara fara fleiri leiðir eins og að byggja upp almenningssamgöngur á sama tíma, eitthvað sem ríkisstjórninni virðist alveg ómögulegt að gera. Það sést einna best á því að meðan borgarlínan frestast aftur og aftur, með brúnni yfir Fossvog, fá íbúar höfuðborgarsvæðisins engar úrbætur í almenningssamgöngum. Framlögin frá ríkinu til almenningssamgangna halda ekki einu sinni í við verðlag.

Mat óháðra aðila á loftslagsstefnu flokkanna fyrir síðustu kosningar tók af öll tvímæli um það að loftslagsstefna Pírata er fyrsta flokks og fékk raunar flest stig af loftslagsstefnum allra framboðanna. Því þótti þessi loftslagsstefna, sem hæstv. ráðherra þótti lítið til koma, sú besta af loftslagsstefnu allra framboðanna. Við Píratar leggjum mikið upp úr því að stefnan sé heildræn og takist á við vandann heildstætt. Það er lykilatriði til að ná árangri að þær aðgerðir sem farið er í vinni saman og skapi hvort tveggja fyrirsjáanleika og sjálfbærni. Fyrirsjáanleiki snýst um að fólk hafi trú á lausnunum. Nú upplifa mörg að hafa skipt yfir í rafbíla til að taka þátt í þessum orkuskiptum sem hafa svo ítrekað verið boðuð en síðan var öllum forsendum skyndilega breytt með kílómetragjaldi sem er sett á í flóknu umhverfi og beinist náttúrlega eingöngu gegn tengiltvinn- og hreinorkubílum. Sjálfbærni þarf til að fjárfestingin skili sér og hverfi ekki skyndilega eins og við sjáum skýr merki um hvað varðar hrun í sölu á rafmagnsbílum. Við megum heldur ekki vera með slíkar kúvendingar að sprotarnir sem eru byrjaðir að vaxa og dafna deyi út. Það sem við gerum verður að vera eitthvað sem nýtist.

Ég vil líka koma að sérstökum þökkum til hæstv. ráðherra fyrir að sýna fram á þörfina fyrir það að ræða loftslagsstefnu Pírata. Það kann að hljóma furðulega að við séum farin að ræða hana hér en annað er eiginlega ómögulegt eftir þá umræðu sem átti sér stað í gær. Það er engin leið önnur en að verja hana aðeins hér. Loftslagsstefna Pírata er samt alveg skýr og snýst síður en svo um það að standa í vegi fyrir grænum orkukostum eða samkeppnishæfni fyrirtækja heldur snýst hún heildrænt um þessa þætti: skýra stefnu í átt að kolefnishlutleysi; græna umbreytingu í allra hag; stjórnsýslu og stjórnvöld; græna umbreytingu atvinnulífsins; náttúruvernd; hringrásarsamfélag; að valdefla almenning; aðgerðir á alþjóðasviðinu; loftslagsaðlögun og síðast en ekki síst verndun hafsins. Með því að uppfylla þessa þætti með heildrænni nálgun getum við raunverulega náð árangri í loftslagsmálum. Okkur er nefnilega alvara með að ná árangri. Það sem við gerum í loftslagsmálum á ekki bara að vera til sýnis. Sá árangur á að vera raunverulegur. Til viðbótar segjum við að öll stefna skuli vera loftslagsstefna.

Að auki vil ég benda á, þar sem nú hefur mikið verið rætt um dóma Mannréttindadómstólsins, að nú liggur fyrir dómur þar sem það er talið mannréttindabrot að ríkið sinni ekki loftslagsmálum. Ég kalla því eftir að hæstv. ráðherra hætti að bera það upp á okkur Pírata að vilja ekki standa að grænni orku þó að þeir þingmenn sem hér voru hafi ekki viljað fórna verndarsvæðum. Þó að ég hafi ekki tekið þátt í þeirri atkvæðagreiðslu tek ég heils hugar undir afstöðu þeirra að greiða ekki atkvæði með því máli. Það þýðir ekki að ég sé á móti grænum orkuinnviðum, svo sannarlega ekki. Ég frábið mér slíkar söguskýringar og fyrir þeim er engin innstæða. Nær væri að hæstv. ráðherra myndi raunverulega fara í samtal við okkur um málin þannig að við gætum sammælst um að afgreiða þau í sátt, að málin séu góð og að lokum að málin raunverulega skili einhverjum árangri. Þannig getum við myndað raunverulegan árangur í loftslagsmálum, en mig grunar að það séu of þung skref fyrir ríkisstjórnina að fara í samstarf um góð mál.