Orkusjóður.
Frú forseti. Hv. þingmaður nefnir sérstaklega kostnað við umsýslu sjóðanna og leggur til að ríkið taki þann mögulega sparnað til sín. Ég er ósammála honum með það og myndi vilja sjá þann mögulega sparnað renna til hærri styrkja en ætla ekki að elta ólar við það. Ég er vanur því að við hv. þingmaður séum ekki alveg á sömu síðu með allt. En mig langar að velta því upp að þetta þykist þingmaðurinn lesa út úr greinargerðinni en það er bara alls ekkert skýrt. Mat á áhrifum þessa máls er alls ekki skýrt og meira að segja þegar við spurðum hæstv. ráðherra út í þetta í umræðum í gærkvöldi — ég spurði hann einfaldlega: Hver er sparnaðurinn? Það er talað um að það sé einhver möguleiki á að spara pening. Ertu með einhverjar krónutölur, félagi? — þá brást hann illa við og var bara fúll á móti og sagði að auðvitað væri einhver sparnaður þó að hann hefði ekki töluna á takteinum. Ef ekki þegar ráðherra mælir fyrir máli, hvenær í ósköpunum á hann að vera með tölu á takteinum varðandi það hver áhrif frumvarpsins eru? En það er svo sem ekki við öðru að búast af hæstv. ráðherra er ég farinn að átta mig á. Mig langar hins vegar að rifja það upp að í tengslum við þessa sjóðasameiningu förum við eðlilega að ræða um ETS-kerfið, sem upphaflega átti að vera tekjustofninn í loftslagssjóði, og þá miklu fundalotu sem íslenskir embættismenn áttu hér með framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fyrir ári til að ná fram því sem var sannkölluð sérlausn varðandi endurgjaldslausar losunarheimildir til flugfélaga á árunum 2025–2026. (Forseti hringir.) Svo kom bara í ljós í fjármálaáætlun að þetta verður til tekjumissis fyrir ríkissjóð. Þetta er borgað af okkur, 3,1 milljarður á þessum tveimur árum.