Orkusjóður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þau komu mér ekki sérstaklega á óvart, fagnaðarlætin sem brutust út í tengslum við Evrópuhátíðina og vísa ég til samkomulags þáverandi hæstv. forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur og Ursulu von der Leyen og að það sé nú ekki eins hagfellt íslenskum hagsmunum og látið var í veðri vaka. Þetta var eins og hv. þingmaður kom inn á einhver mesta fundarispa, stærsta aðgerð, minnir mig að henni hafi verið lýst, sem íslensk utanríkisþjónusta hafði gengið til. Gott ef það var ekki bara stærsta aðgerð sem íslensk stjórnsýsla hafði gengið til og eru menn þá fljótir að gleyma. Ég ímynda mér nú að slagurinn um stöðugleikaframlögin hafi gert sitt. En ég held að þetta sé ETS-málið og er ekki viss um að ég og hv. þingmaður séum sammála um skynsemi þess regluverks og að það sé lagt hér eins og kæfandi teppi yfir flug- og siglingastarfsemi á Íslandi, að skynsamlegt sé að við séum þar innan dyra hvað okkar hagsmuni og starfsumhverfi varðar, en það blasir við að það mál er óklárað. Ég er hræddur um að þegar þessi séríslenska sérlausn rennur sitt skeið í lok árs 2026 blasi við okkur miklu alvarlegri staða heldur en menn þora að horfast í augu við núna.
Varðandi sjóðina þá finnst mér ég hafa séð í frumvarpsdrögunum að ætlunin sé að auka heildarstyrkveitingar sjóðanna þannig að einn plús einn verði rúmlega tveir en hef ekki skoðað í samhengi við fjármálaáætlun hverjar heildarupphæðirnar eru og hvernig þær eru áætlaðar.