154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[16:27]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Ég held að ETS-kerfið sé enn eitt atriðið þar sem við getum verið ósammála. Ég held samt að ég sé sammála hv. þingmanni um það að höggið verði nú töluvert þyngra þegar þessari svokölluðu sérlausn lýkur. Það sem hefði gerst ef ekki væri fyrir þessa sérlausn er að gjaldtaka á flugfélög sem fljúga til Íslands hefði farið að trappast inn sem við vitum ekki nákvæmlega hvernig verður útfærð eftir 2026. Það sem mun gerast eftir 2026 er annaðhvort að Alþjóðaflugmálastofnunin útbúi alheimskerfi með svipaðri virkni eða, ef þær samningaviðræður skila engu, að Evrópusambandið haldi áfram með sitt kerfi sem er í rauninni skítamix á Evrópuvísu á meðan heimurinn er ekki búinn að leysa þetta. Hvor leiðin sem verður fyrir valinu þýðir að gjaldtaka mun verða fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi. Ætlar íslenska ríkið að halda áfram að blæða því fyrir flugfélög sem fljúga til Íslands? Ætlar íslenska ríkið að halda áfram að niðurgreiða flug til að flugfélögin þurfi ekki að finna fyrir þessu höggi eða hefði kannski verið eðlilegt fyrir stjórnvöld að setjast niður með flugfélögunum og útbúa einhverja mjúka lendingu fyrir þau inn í þetta kerfi, finna einhverja leið fyrir þau að aðlagast kerfinu frekar en að það þurfi að rífa þetta af eins og plástur einhvern tímann eftir nokkur ár? Það gerðist ekki vegna þess að stjórnvöld sváfu á verðinum. Þess vegna voru haldnir 100 fundir í Brussel, vegna þess einfaldlega að hagsmunagæsla íslenskra stjórnvalda er í algjöru skötulíki í Brussel. Þó að við deilum ekki sýn á Evrópusambandið þá held ég að við séum örugglega sammála um að hér þurfi að gera miklu betur. Íslensk stjórnvöld þurfa að vera vakandi í Brussel.