154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[16:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég hélt þar til rétt í þessu að ég og hv. þingmaður deildum sýn hvað Evrópusambandið varðar, að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan þess en innan, alla vega er ég sannfærður um að hagsmunum okkar er betur borgið utan þess félagsskapar. Varðandi þessa mjúku lendingu hvað flugfélögin varðar sem hv. þingmaður nefnir þá er það á endanum neytandinn, almenningur, einstaklingurinn og auðvitað allir þeir sem kaupa sér flugmiða og þurfa að ferðast með flugi til og frá landinu sem þessi kostnaður lendir á. Hvað fyrirtækin varðar þá snerist þetta um bjagaða stöðu gagnvart samkeppnisaðilum sem voru að fljúga beint yfir Atlantshafið en viðbótarkostnaðurinn myndi alltaf endurspeglast í fargjöldum sem almenningur og fyrirtæki þyrftu að greiða. Þetta er tvíþætt, annars vegar er þetta viðbótarkostnaður almennings og fyrirtækja við það að nota flug, sem blasir við að er okkur lífsnauðsynlegt í ljósi landfræðilegrar legu Íslands, og hins vegar snýst þetta um samkeppni flugfélaganna sem fljúga til Íslands, sérstaklega þeirra sem nota Ísland sem tengimiðstöð, Icelandair og Play eins og staðan er núna, milli Evrópu og Ameríku. Þetta kerfi sem við höfum nú undirgengist frá og með 1. janúar 2027, hvernig sem þetta spilast allt saman út, er okkur mótdrægt og það mjög. En kostnaðurinn mun alltaf enda á farþeganum þannig að það er líka kjaramál fyrir íslenskan almenning að þarna sé staðið fast í ístaðinu og íslenskir hagsmunir varðir eins og nokkur kostur er.