vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Ég vildi koma hér upp og spyrja hv. þingmann hvort hann myndi telja það vera þjóðinni og kjósendum okkar eða þeim sem kusu okkur og veittu okkur umboð til að takast á við stjórn landsins og treysta okkur fyrir því til heilla — við erum kosin samkvæmt stjórnarskránni — hvort hann trúi því að ef hér yrði boðað til kosninga, sem myndi tefja ýmis stórmál eins og að klára fjármálaáætlun og fylgja eftir nýgerðum kjarasamningum þannig að Seðlabankinn geti farið að lækka stýrivexti og seinka því um sex mánuði að hér sé hægt að fylgja eftir öðrum stórum málum sem hafa verið rædd — er þjóðin að kalla eftir því? Erum við þannig að sinna þeim verkum sem við vorum kjörin til að sinna? Og eru kosningar það eina sem stjórnarandstaðan sér fyrir sér? Er enginn flokkur í stjórnarandstöðunni sem myndi treysta sér til að fara í ríkisstjórn og takast á við þessi verkefni og bera ábyrgð á þeim? Ég heyri bara hér að tillagan snúist um að boða til kosninga. Er það það eina sem stjórnarandstaðan treystir sér í?