vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Forseti. Nei, ég sagði að þingið gæti klárað þessi mál. Hv. þingmanni misheyrðist greinilega eitthvað. Ég velti því fyrir mér hvaða upplausn öll spillingarmálin valda í rauninni í samfélaginu hvað það varðar að klára góð mál. Eins og ég sagði í ræðu minni þá spillir vantraust góðum málum. Kjarninn í því sem við erum að reyna að vinna hérna, allt þar á bak við, er traust á því að málin sem við skilum af okkur séu í raun og veru góð og heiðarlega unnin, ekki eins og t.d. búvörulögin sem var ýtt með einhverjum breytingartillögum í gegnum þingið fyrir stuttu síðan, eða önnur mál sem við höfum þurft að glíma við af því að þeim var ýtt svo hratt í gegnum þingið að upp komu milljarðavillur. Það hefur gerst líka. Þannig að nei, við erum ekki að tefja mál. Já, ég hef verið hérna á þingi þar sem var starfsstjórn og það tókst að leysa fjárlög. Ég held að það séu ein bestu fjárlög sem ég hef upplifað á mínum þingferli. Ég hef því mjög mikla trú á þinginu en hef hins vegar enga trú á ríkisstjórninni. Þess vegna held ég að hún væri mjög vel sett sem starfsstjórn, kannski ekkert endilega með öllum flokkunum meira að segja, og þingið sjálft klári þetta, að þingið tali sig saman um það hver eru mikilvægu málin og klári kjörtímabilið.