154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[18:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar sem lögð er fram af 12 þingmönnum af 63, tveimur flokkum af fimm sem sitja í minni hluta. Tillagan er tvær setningar. Ég náði mér í skjalið og var að athuga hvar rökstuðningurinn, greinargerðin fyrir þessu væri. Hún var ekki. Fyrir vikið hlustaði ég með athygli á fyrsta flutningsmann til þess að leita eftir því hver væru rökin fyrir því að taka umræðu til nokkurra klukkutíma, fyrsta flutningsmann sem hefur síðustu daga hvatt til þess að fylla þingpalla og búa til búsáhaldabyltingar. Það eru vissulega nokkrir á þingpöllum. Það eru ekki margir hér í salnum, áhugaleysið virðist vera algert. Það trúir enginn á það að þessi vantrauststillaga hafi verið sett fram af einhverju tilefni, enda voru ekki málefnaleg rök sett fram. Það var allt milli himins og jarðar. Þetta var svona eins og góð eldhúsdagsumræða sem við ætlum að eiga í júní næstkomandi eða eins og kosningafundur. Kosningarnar koma þegar kjörtímabilið er úti.

Annar flutningsmaður flutti hér ræðu og talaði um að keisarinn væri ekki í neinum fötum. Það er alveg rétt. Þessi þingsályktunartillaga um vantraust er ekki í neinum fötum. Það er ekkert kjöt á beinunum. Hér hafa líka komið upp aðrir hv. þingmenn, Logi Einarsson úr Samfylkingunni, og teiknað upp að sjö ára seta þessara ríkisstjórnarflokka hafi ekki skilað neinu; hlutlaus fjármálaáætlun, sagði hann. Fjármálaáætlun er hlutlaus hvað það varðar að hún segir satt. Hún sýnir fram á ótrúlegar breytingar á íslensku samfélagi á síðustu sjö árum, ótrúlega lífskjaraaukningu almennings í landinu, kaupmáttaraukningu umfram öll önnur samanburðarlönd í Vestur-Evrópu. Hún sýnir fram á að skuldastaða heimilanna er í sögulegu lágmarki og lægri en nær allra Norðurlandanna. Öðruvísi mér áður brá. Sama staða er uppi hjá fyrirtækjum. Fjármálaáætlunin sýnir fram á tækifærin sem við getum notið á næstu árum. Hún sýnir með öðrum orðum gríðarlega sterka stöðu íslensks samfélags eftir sjö ára setu þessara þriggja flokka. Þess vegna er ekkert skrýtið að við ætlum að halda áfram og klára verkefnið. En það er skrýtið, virðulegur forseti, að taka þátt í þessari umræðu hér við þessar aðstæður. Mér finnst það sýna alvöruleysi. Mér finnst það sýna áhugaleysi. Mér finnst það sýna virðingarleysi. Mér finnst það líta út eins og menn líti svo á að þessi ræðustóll sé fyrst og fremst leiksvið og þessi salur sé leikhús; leikhús fáránleikans. Og mér finnst það ekki gott.

Mér finnst að við eigum að átta okkur á því að hér er fyrst og fremst löggjafarsamkoma. Ég hef verið í þingsal síðustu daga og komið málum á dagskrá. Ég hef horft á umræður. Í sumum málum koma ekki bara þrír, heldur fjórir eða fimm frá sama flokknum, ekki bara í eina ræðu og ekki tvær í 1. umræðu um mál, aftur og aftur með sömu ræðuna. Er það til að koma skilaboðunum örugglega til skila inn í þingnefndina sem síðan fjallar um málið áður en við tökum hina breiðu umræðu við 2. umræðu, eða er það til að skapa sér stöðu til að ýta öðrum málum frá? Er það tilgangurinn með þessari tillögu hér í dag að taka nokkra klukkutíma til að koma í veg fyrir að mál eins og — ég ætla að nefna nokkur — kjarasamningsmál fjármálaráðherra sem fjallar um barnabætur og sérstakan vaxtastuðning til heimila komist á dagskrá og geti klárast sem fyrst til að við getum framkvæmt það sem við erum búin að segjast ætla að gera og ég hef ekki heyrt annað en stuðning við? Eða til að koma í veg fyrir að mjög þarft frumvarp um lagareldi komist á dagskrá, (Gripið fram í.) umgjörð um fiskeldi á Íslandi, eða um aðgerðir gegn peningaþvætti, svo ég nefni bara þrjú af tólf málum í dag? Er það tilgangurinn með þessari umræðu hér? Maður spyr sig. Ýta þeim 70 eða 80 málum sem við ætluðum að reyna að klára hér á þessu vorþingi, eins mörg og við getum, önnur bíða auðvitað haustsins ef við ekki náum að klára — er það tilgangurinn með þessari umræðu?

Ég vil ljúka máli mínu á því að segja að ég legg til að við þingmenn allir reynum að ljúka þessari umræðu hratt og vel, göngum til atkvæða og förum svo að vinna að verkefnunum sem við vorum kjörnir til.