vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Mig langar að fagna því að fá þó alla vega umræðu um þetta mál frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni. Hann vék að því að þessi tillaga væri að hans mati rýr, að í henni kæmi ekki nóg fram í greinargerð. Ég veit ekki hvað ætti að koma fram í henni. Ég veit ekki hvað þarf að koma meira fram en að við treystum ekki þessari ríkisstjórn til verka. Hvað þykir þá hæstv. ráðherra um tillögu sem var lögð fram fyrir u.þ.b. tíu árum rúmum, sem er algerlega samhljóða þessari, af hans eigin hæstv. forsætisráðherra í þeirri ríkisstjórn sem nú starfar?