154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[18:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég lýsti því að það stæði ekkert í greinargerð með tillögunni útprentaðri. Ég lýsti því hins vegar líka að ég hefði þar af leiðandi hlustað með athygli á bæði fyrsta og annan flutningsmann. Ég heyrði að talað var um allt milli himins og jarðar og um allt sem mönnum finnst, sem er kannski ekkert skrýtið af því að við höfum mismunandi skoðanir. Er afleiðingin af því að menn segjast ekki treysta þessari ríkisstjórn að hægt verði að taka þessa umræðu daglega? Er það tilgangurinn? Vorum við kjörin á þing til þess? Það var það sem ég var að segja. Til hvers var þessi tillaga sett fram? Er titringur í þingsalnum og sitja allir í sætum sínum og bíða eftir því að komast í atkvæðagreiðsluna vegna þess að óvíst sé um niðurstöðuna? Nei, það er enginn áhugi. Mér finnst þetta alvöruleysi. Mér finnst þetta virðingarleysi við vinnuna.