vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Mig langar líka að fá svar við því frá hæstv. ráðherra hvort hann telji það raunverulega óeðlilegt að hér ríki vantraust, sérstaklega í ljósi þess að af þeim málum sem hér eru til umræðu er ekki nokkurt einasta frá stjórnarandstöðunni. Það væri kannski ákveðið skref til að búa til traust að gefa líka fulltrúum annarra kjósenda, sem eru þó nokkuð margir á þingi, eitthvert ráðrúm, að það sé ekki bara algjört alræði frá fulltrúum þó ekki nema bara 108.323 kjósenda úr síðustu kosningum. Það færi mun betur á því að dreifa þessu.