vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegur forseti. Nú veit ég ekki alveg hvað þingmaðurinn á við en ef hv. þingmaður er að fjalla um það hvernig við vinnum hérna í þinginu þá kjósum við jú að jafnaði á fjögurra ára fresti, ef vel gengur, og myndum yfirleitt meirihlutastjórnir. Mér hefur sýnst eftir veru mína og reynslu hér á þinginu að langsamlega flest mál séu afgreidd út með grænu á öllum tökkum, langflest mál. Ég man ekki hve hátt hlutfallið er. Meira að segja oftar en á þjóðþingum í kringum okkur hafa mál tekið breytingum í nefndum þar sem væntanlega er hlustað á ólík sjónarmið og allir þingmenn koma hingað inn í þingsal og greiða atkvæði. Þegar þeir eru meira og minna sammála í langflestum málum hlýtur það að vera vísbending um að hér hafi farið fram lýðræðisleg umræða sem endar með því að við erum meira og minna sammála. Auðvitað ekki í öllum málum, til þess erum við kjörin í mismunandi flokkum og þess vegna höfum við líka möguleika á að taka þessa umræðu hér. En við getum bara tekist á innan þeirra mála sem við erum með, (Forseti hringir.) við getum ekki haft þessa umræðu daglega þótt við séum ósammála um eitthvað. Þá verður okkur ekki mikið úr verki.