154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[18:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er stoltur af því að búa í lýðræðisríki þar sem fólk hefur heimild til að mótmæla með friðsamlegum hætti, ég er stoltur af því. Ég er gríðarlega stoltur af afrekum ríkisstjórnarinnar. Hv. þingmaður minntist hér á heilbrigðismálin. Já, ég er alveg gríðarlega stoltur af því hvernig þau hafa þróast áfram, hversu mikla fjármuni við höfum sett í þau, hvað við erum að byggja mikið upp, hversu marga biðlista við höfum stytt o.s.frv.; gert samninga við sérfræðilækna, komið á sífellt lækkandi greiðslubyrði sjúklinga og fleira í þeim dúr.

Er allt fullkomið? Að sjálfsögðu ekki. Þess vegna höldum við alltaf áfram í pólitík. Er ég stoltur af því að við búum í því landi þar sem kjör fólks eru hvað jöfnust og þar sem þeir hópar sem minnst hafa það hafa styrkst hvað mest og þeirra kaupmáttur á síðastliðnum sjö árum? Já, ég er gríðarlega stoltur af því og þeim sóknarfærum sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir, einmitt vegna þess að þessi ríkisstjórn mun skila af sér mjög góðu búi þegar að kosningum kemur. En það verður ekki samþykkt í dag.