vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði mér alls ekki að fara að skipta mér af því hvað hv. þingmaður talar um eða hvernig. Langt þar í frá. Ég má hins vegar hafa skoðanir á því að ekki hafi verið mikið púður í ræðu hv. þingmanns, og það ekki verið vel rökstutt til hvers og af hverju við værum að fara að greiða atkvæði um vantraust á ríkisstjórn. Ég las það líka einhvers staðar áðan að það væru mjög líflegar umræður um þessa vantrauststillögu. Ég verð bara að segja að mér finnst umræðurnar ekki vera líflegar, enda finnst mér þetta vera hálfgert alvöruleysi.