vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegur forseti. Ég held að ég hafi ekki talað um að þetta væri vanvirðing við þjóðina. Ég var að tala um að það væri ákveðið virðingarleysi, áhugaleysi og alvöruleysi að leggja fram þessa tillögu og af ræðum fyrsta flutningsmanns og annars, sem tala þá fyrir hönd þeirra flokka sem leggja fram tillöguna, fannst mér það ekki vera og verð að viðurkenna það, það getur bara verið mín skoðun, sett fram með neinum rökstuddum hætti heldur var farið yfir allt sviðið og sagt: Ég er á móti þessu, það hefur ekkert verið gert. Það voru teiknaðar upp myndir sem ég hef oft heyrt stjórnarandstöðuna gera í þessum ræðustól, að hér sé allt í skralli. Svo er lögð fram tillaga um vantraust á alla ríkisstjórnina vegna þess að þetta er bara spurning um að vera á móti stefnu ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Það sem ég spyr um hér er hvort við þurfum þá að taka þessa umræðu um vantraust dagsdaglega eða hvort við ættum frekar að taka þessa umræðu inni í málunum þegar við erum að fjalla um þau.