154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[18:53]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var mjög skýr í sinni ræðu þegar hann tók það fram sérstaklega að vantraustið sem Píratar eru að leggja fram á ríkisstjórnina snýst ekkert um málefnin, snýst ekkert um stefnu ríkisstjórnarinnar því að það er eitthvað sem við getum tekist á um í kosningum. Það snýst um vantraustið sem er út af þeim spillingarmálum sem hafa komið fram hjá ríkisstjórninni trekk í trekk. Þetta snýst um að þessi ríkisstjórn hefur verið í viðvarandi krísuástandi í allt of langan tíma og ég, forseti, get sagt það heiðarlega að ég hef miklar áhyggjur af því að það standi einmitt í vegi fyrir því að klára ótrúlega mikilvæg, stór og nauðsynleg mál fyrir þetta samfélag. Ég hef áhyggjur af því að viðvarandi neyðarástand þessarar ríkisstjórnar, þessi heimatilbúni vandi, sé til þess fallið að við getum ekki horft á það framsýnt hvernig við getum farið að byggja upp samfélagið til framtíðar, (Forseti hringir.) út af því að við erum alltaf að díla við einhverja krísustjórnun innan ríkisstjórnarinnar. Það er ástæðan fyrir þessu vantrausti og það hefur verið mjög skýrt af okkar hálfu.