154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[18:55]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst erfitt að fjalla um vantrauststillögu af léttúð. (Gripið fram í.) Þegar ég hlusta annars vegar á fyrsta flutningsmann frá Flokki fólksins sem fer yfir sviðið og talar um öll möguleg og ómöguleg málefni og hvað ríkisstjórnin er vond á öllum sviðum og heyri síðan annan flutningsmann málsins frá Pírötum fjalla um það sem Píratar hafa meira og minna verið að fjalla um alla daga, alltaf, í öllum málum þá velti ég fyrir mér um hvað þetta snýst. Það var út frá því sem ég fór með mína ræðu. Vissulega er þetta einfaldlega þannig að við getum tekið þessa umræðu, við erum langt komin með hana og við verðum bara að klára hana. Ég vil enda á því sem ég sagði við lok minnar ræðu, þ.e. ég legg til að við ljúkum þessari umræðu sem fyrst, göngum til atkvæða og förum svo að snúa okkur að verkefnunum.