154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[18:56]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu Pírata og Flokks fólksins um vantraust á ríkisstjórnina. Ég vil undirstrika að það á aldrei að vera léttvægt skref að boða vantraust hér í þessum sal. — Ég bið forseta að bæta við tímann. Það á aldrei að vera létt léttvægt skref að boða vantraust hér í þessum sal en það er engu að síður lýðræðislegur réttur hvers þingmanns að leggja fram vantraust. Þann lýðræðislega rétt verðum við að virða, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Við eigum ekki að tala til þeirra sem flytja slíkar tillögur af yfirlæti eða vanvirðingu, sama hvers eðlis tillögurnar eru og hvort við erum ósammála þeim eða sammála. Þessi salur er of stór fyrir slíkt og hann er of merkilegur fyrir slíkt. Nú stendur á okkur sem vorum m.a. ekki flutningsmenn á tillögunni að taka afstöðu til hennar. Það er skylda okkar að taka afstöðu og finna hvað einmitt hjartað segir okkur, skynsemin segir okkur í svona stóru máli, því tillagan er auðvitað ekki komin til í neinu tómarúmi. Það sjá allir og þau líka sem hafa einhver skilningarvit.

Við stöndum frammi fyrir spurningunni: Er þessi ríkisstjórn á traustum grunni? Áttavitinn okkar í Viðreisn er almannahagsmunir framar sérhagsmunum þannig að það liggur við að spyrja þessara spurninga, verandi með svona einfaldan áttavita: Eru það almannahagsmunir fyrir þjóðina að þessi ríkisstjórn haldi áfram? Hér komu m.a. þingmenn stjórnarflokkanna og sögðu: Við höfum sterkt lýðræðislegt umboð. Já, það hefur ríkisstjórnin, það undirstrika ég og ég vil gera það héðan úr stjórnarandstöðu. Hún hefur það og við virðum það. Ég vil á móti segja líka og spyrja: Er það ekki vanvirðing við lýðræðið að ríkisstjórnin komi engum málum í gegn svo heitið geti? Þetta er verkstola ríkisstjórn. Það er það sem hún er. Það var verið að tala um mörg mikilvæg mál sem þyrfti að koma hérna í gegn. Grindvíkingar voru nefndir til sögunnar. Er það til vitnis um að það sé allt í blússandi gangi fyrir Grindvíkinga þegar þeir eru að boða til mótmælafundar á morgun á Austurvelli? Er það vitnisburður um sterka stjórn og stöðu ríkisstjórnarinnar í þessu máli, hjá þessari verkstola ríkisstjórn? Nei, auðvitað ekki, virðulegur forseti. Við þurfum starfhæfa ríkisstjórn og það er þessi ríkisstjórn ekki. Því fer að mínu mati fjarri að það séu almannahagsmunir fólgnir í því að hafa þessa ríkisstjórn áfram. Við þurfum ríkisstjórn sem tekur ákvarðanir og lætur ekki innbyrðis átök stöðva allt. Við erum að sjá kjörna fulltrúa meiri hlutans eyða orku sinni og tíma í innbyrðis átök, einhverja stólaleiki, einhverjar samningaviðræður, fara á Þingvelli með reglulegu millibili og endurnýja heitin, í stað þess að verja tíma sínum fyrir almenning í landinu, setja orkuna þangað en ekki í hvað þau geta setið lengi í þessum stólum.

Virðulegi forseti. Ég er nú almennt á því að að það sé vond þróun þegar stjórnmálafólk er almennt að miða allt við skoðanakannanir. Mér finnst það bara leiðinleg þróun. Það sem ég vil hins vegar draga fram er að tölur í skoðanakönnunum geta verið ákveðinn spegill og ekki síst þegar orð og tillögur frá fyrri tíma liggja mjög skýrt fyrir, m.a. í þingskjölum. Við erum að sjá nýja mælingu frá Maskínu í dag þar sem er m.a. dregið fram að 70% eru neikvæð gagnvart ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Aðeins 9% þeirra sem svara könnuninni treysta ríkisstjórninni betur eftir að skipt var um forsætisráðherra. 84% aðspurðra trúa því að nýja ríkisstjórnin, kemur reyndar engum á óvart, muni gera minna gagn en sú síðasta eða engu breyta. Það er sem sagt að festast í sessi þessi ímynd almennings af ríkisstjórninni að þessi ríkisstjórn muni ekki gera neitt eða bara minna en ekki neitt. Ókei, 84% en vel að merkja, þetta er skoðanakönnun.

Við erum með þingmeirihluta, 38 þingmenn sem styðja þessa ríkisstjórn. Á sínum tíma, 2016, þegar ríkisstjórn Sigurðar Inga tók við um stundarsakir, lagði stjórnarandstaðan fram vantraust og vildi að boðað yrði til kosninga. Þá voru það m.a. rök hv. þingmanna á borð við Svandísi Svavarsdóttur og Katrínu Jakobsdóttur að 65%, þ.e. verulega minna hlutfall aðspurðra, sagðist bera lítið eða mjög lítið traust til ríkisstjórnarinnar. Þetta er viðmið, þetta er ákveðinn spegill. Áttum okkur á því að þarna var ákveðið samhengi sett fram og svo var sagt og rætt sérstaklega um þá veruleikafirringu sem var þá hjá fyrri ríkisstjórn. Ég held að það sjái allir, þegar við erum að hlusta á ræðu ráðherra hér í dag, að mér finnst bara skorta á pínulitla raunveruleikatengingu. Og af hverju segi ég það? Við sjáum það, talandi um almannahagsmuni, að það er algjört forgangsmál að fara að rjúfa þessa kyrrstöðu sem er eiginlega alls staðar að birtast okkur, líka í þessari skoðanakönnun sem ég nefndi áðan, aðgerðaleysi í efnahagsmálum. Við erum að sjá m.a. rökstuðning Seðlabankans fyrir því að það var erfitt að lækka vexti á síðasta ákvörðunardegi varðandi stýrivexti, m.a. að ríkisstjórnin hafði ekki sýnt nægilega vel á spilin um það hvernig hún ætlaði að fjármagna kjarapakkann. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar — þau voru ekki tilbúin. Eftir alla þessa mánuði þegar kjarasamningar voru gerðir var ríkisstjórnin ekki tilbúin með það hvernig hún ætlaði að fjármagna þetta. Eitt dæmi um aðgerðaleysi.

Annað dæmi um það er að verðbólgan er sem betur fer á niðurleið en rosalega tekur þetta langan tíma hjá okkur Íslendingum. Danir eru komnir í kringum 1% eða jafnvel minna, eða má ekki lengur miða sig við Dani? Við erum með vaxtastig, við erum í þriðja sæti þegar kemur að vöxtum á eftir hverjum? Ekki á eftir Dönum, ekki Þjóðverjum sem eru með um 4%, ekki á eftir Spánverjum eða Svíum eða Norðmönnum. Nei, við erum á eftir Rússum og Úkraínumönnum sem eru í stríði. Þar erum við, ég ætla ekki að segja bara út af því en m.a. út af því að ríkisstjórnin hefur ekki sinnt því hlutverki að vera í ríkisstjórn og stjórna, taka ákvarðanir sem geta verið erfiðar.

Við erum að sjá líka enn og aftur fjárlög, fjármálaáætlun núna kynnta sem já, þó að það ruggi bátnum hér er hún í besta falli hlutlaus. Ég er ekki farin að sjá þessa fjármálaáætlun lækka verulega bæði verðbólgu og vexti til lengri tíma. Það getur vel verið að það komi eitthvert skammhlaup í þetta, jákvætt, en til lengri tíma hef ég verulegar áhyggjur og ég er ekki sú eina þegar ég les m.a. greinar hagfræðinga sem hafa verið að skrifa um þetta á umliðnum dögum. Við erum að sjá, klassískt hjá þessari ríkisstjórn, enn og aftur sinnuleysi í fjárlögum. Það er verið að setja álögur á framtíðarkynslóðir, framtíðarskattgreiðendur. Þetta er að verða mantra m.a. hjá Sjálfstæðisflokknum.

Við erum að tala um heilbrigðismál, um hvað er búið að gera. Það má ekki tala um biðlista. Nei, það má ekki tala um það. Það er eins og ríkisstjórnin, þar á meðal Framsóknarflokkurinn, viti ekkert um þann biðlista sem fólk þarf að standa frammi fyrir þegar við erum að fara að fá tíma hjá heilsugæslulæknum sem eru undir ómældu álagi og það er ekki hægt að reyna að einfalda kerfið, reyna að taka af þeim skriffinnskuna og fleira til að þeir geti sinnt fólkinu sem er að kalla eftir þjónustu. Eigum við að tala um biðlista til að fá svar og umönnun varðandi fíknisjúkdóma, fólk sem er með fíknisjúkdóma? Eru það ekki biðlistar? Geðheilbrigðismál — biðlistar, aðgerðaleysi.

Orkumál, orkuöryggi, afhendingaröryggi — ég held að það sé langt síðan það var jafn óöruggt og það er í dag. Það hefur verið nefnd hér núllleiðin sem m.a. þingmenn Samfylkingarinnar hafa bent á hér í dag. Það eru hrópandi tölur, núll framkvæmdir í jarðgöngum, núll varðandi virkjanir, núll bara eiginlega alls staðar þegar kemur að því að ýta undir orkuskiptin, af því að það er verið að taka m.a., ríkisstjórnin sjálf hefur séð um það vel að merkja, virkjanir sem eru á rammaáætlun eins og Hvammsvirkjun — hún hefur verið sett í ákveðna gíslingu. Vonandi leysist það núna. Við í stjórnarandstöðunni, alla vega Viðreisn, erum að þrýsta á að það verði stigin skref í þessum málum en það hefur ekki verið gert — aðgerðaleysi.

Það er hægt að nefna innviðamálin, það er hægt að nefna klúðrið í bankamálum, auðlindamálum, það er ekkert verið að tala skýrt þar, bara status quo, alls ekki hrófla við eða rugga þeim bát sem snertir sjávarútveginn eða aðrar auðlindir sem eru í eigu þjóðarinnar, menntamálin — aðgerðaleysi, samgöngumálin og ég gæti haldið endalaust áfram. Jú, það er auðvitað búið að gera eitt og annað en stóra myndin er sú að við erum að kalla eftir því að halda áfram, ekki að eyða tímanum í þetta sem ríkisstjórnin er búin að gera og er byrjuð að kunna ansi vel, það eru þessir stólaleikir. Það er auðvitað ekkert til að undirstrika staðfestu eða til að ýta undir fólkið núna sem er að kljást við verðbólgu og vexti að skipta um fjármálaráðherra og hafa þrjá fjármálaráðherra á sex mánuðum. Hvers konar er þetta? Hvers konar stjórn er á þessu? Þrír fjármálaráðherrar — svakaleg stjórnfesta — á sex mánuðum. Þetta er sú mynd sem blasir m.a. við 70% heimila sem segja að verðbólga og vextir hafi haft mikil áhrif á heimilisbókhaldið. Á meðan höfum við ríkisstjórn sem skilar auðu, stjórnarflokka sem auglýstu í síðustu kosningum að Ísland væri orðið lágvaxtaland. Þetta fólk er ekki að græða á því, 70% heimila sem segja þetta hafa haft mikil áhrif á heimilisbókhaldið; vextir og verðbólga.

Um leið og ég vil líka draga fram að nýr forsætisráðherra, eðlilega, var nokkuð kokhraustur — það er fólk þegar skipt er um stóla og starf — nokkuð ánægður með nýja samstarfið og að það stæði traustum fótum. Ég held það hafi ekki liðið 36 klukkutímar þar til Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn voru farin að standa í einhverjum ritdeilum um loftslagsmálin, virkjanir, hvalveiðar — þau voru sammála reyndar um búvörumálin, þau eru alveg sammála um það að svína á samkeppnismálum, rétt skal vera rétt hvað það varðar, á meðan sterk og stór félagasamtök segja nákvæmlega þau mál vera sterkan vitnisburð um það sem heitir spilling og það sem heitir sérhagsmunagæsla. Við því má auðvitað ekki hrófla en ég hefði óskað þess að VG færi svolítið í slag við Sjálfstæðisflokkinn hvað þetta mál varðar en það er ekki gert.

Ég held, virðulegur forseti, að það væri hollast fyrir stjórnarflokkana að hætta að rembast eins og rjúpan við staurinn og átta sig á þeim raunveruleika sem blasir við íslensku samfélagi, blasir m.a. við íslenskum heimilum. Vinur er sá er til vamms segir og ég vil hvetja annars ágæta vini mína í Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og Vinstri grænum til að líta svolítið í eigin barm. Auðvitað er gott fólk í öllum þessum flokkum en ég held að þau verði að skoða núna stöðuna af raunsæi. Þetta stjórnarmynstur er ekki að gera neinum gagn, allra síst þjóðinni, allra síst hinni íslensku þjóð. Þegar verkefnin eru ómæld fram undan þá getum við ekki haft ríkisstjórn sem rífur í handbremsuna þegar þjóðin þarf að leggja á heiðina. Það gengur ekki. Þess vegna segir áttavitinn okkar í Viðreisn almannahagsmunir framar sérhagsmunum, að við þurfum að losa okkur við þessa ríkisstjórn og þess vegna munum við styðja þetta vantraust.