154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[19:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta var mikil lofræða um verkefni ríkisstjórnarinnar en eins og kom fram í máli hæstv. fjármálaráðherra höfðu eiginlega öll málin sem ríkisstjórnin kom í gegn verið samþykkt af öllu þinginu. Það þýðir í rauninni að sama hvaða ríkisstjórn hefði verið hérna inni, sama hvaða flokkar, hefðu sum mál augljóslega farið í gegn. Þetta er fullt af málum sem við erum öll sammála um almennt séð. Það er ekki hægt að klappa sér á bakið fyrir að hafa fengið samþykkt mál sem allir eru sammála um, það gerist að sjálfsögðu. Hæstv. ráðherra tók dæmi um mál sem hann hreykti sér af sem var þungunarrofið. Það er mjög áhugavert því að það var hv. þingmaður Pírata, Halldóra Mogensen formaður velferðarnefndar, sem barðist með kjafti og klóm til að koma því máli í gegnum nefndina og inn í þingsal þar sem meira að segja hæstv. forsætisráðherra núverandi ríkisstjórnar kaus gegn því. Það þurfti atkvæði stjórnarandstöðunnar til að koma því máli í gegn. Slíkt má gerast oftar í þessum þingsal, að mál komist hérna inn og að greidd séu atkvæði um þau þó að fólk sé ekki allt sammála, t.d. mörg þingmannamál. En svo eru það líka öll hin málin sem ríkisstjórnin sjálf hefur hent í ruslið. Miðhálendisþjóðgarður átti að vera risastórt mál Vinstri grænna á síðasta kjörtímabili. Mannréttindastofnun virðist núna vera í sama flokki, fyrst mannréttindamálin eru svona mikilvæg. Þau eru greinilega rosalega mikilvæg til að uppfylla samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks; geyma Mannréttindastofnun enn og aftur. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig þetta fer. Við þurfum að geta horfst í augu við eigin ábyrgð og það er ekki erfitt að sjá gallana á því sem núverandi stjórn í rauninni stendur fyrir. (Forseti hringir.) Ég óska því einfaldlega eftir hugrekki hæstv. ráðherra.