vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyri að hv. þingmaður á ágætlega auðvelt með að samgleðjast yfir góðum málum og það er gott. Hann nefnir t.d. þungunarrofsmálið sem ég man ekki betur en að hæstv. núverandi innviðaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra hafi mælt fyrir (Gripið fram í.) og ég tel mikilvægt að við höldum því til haga að mál eins og þessi verða ekki til í tómarúmi. Þau koma hér inn í þingið, í þessu tilfelli frá hæstv. ráðherra, og þar með er ég ekki að gera lítið úr hlutverki þingmanna hér inni sem hafa greitt þessu máli eða öðrum götu sína, alls ekki. Ég er eiginlega að kalla svolítið eftir því hvort hægt væri að samgleðjast yfir góðum málum því að mér fannst ég, ef eitthvað er, skynja gremju í orðum og tóni hv. þingmanns yfir mörgum af þeim góðum málum sem hér hafa klárast í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það þarf ríkisstjórn til þess að vinna mál. Hér var eins og hv. þingmaður teldi að það skipti eiginlega engu máli vegna þess að það væru svo mörg mál sem væru samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Það er þá bara eitthvað sem er jákvætt. Hér kallar hv. þingmaður eftir kjarki. Ég held að sá sem hér stendur hafi staðið í mörgum málum sem hann hefur barist fyrir og fengið í gegn og mun hann halda því áfram.