vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegur forseti. Varðandi verðbólguna þá er þetta beint af heimasíðu Seðlabanka Íslands: 1. febrúar var verðbólgan 6,6% og 1. mars síðastliðinn var hún 6,8%, hækkun um 0,2%. Vissulega fór hún niður en hún fór aftur upp, svo það liggi fyrir. Hún fer hækkandi núna. Stýrivextir á Íslandi eru þeir hæstu í Evrópu fyrir utan Rússland. Ég get ekki annað en lýst hneykslan minni á því að hæstv. ráðherra segi að starfshópur hafi komist að þeirri niðurstöðu að best væri að geyma það að leggja fyrir Alþingi frumvarp um hagsmunafulltrúa aldraðra. Alþingi er búið að gefa þá skipun til hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann eigi að skila frumvarpinu. Hann átti að skila frumvarpinu fyrir lok mars 2022. Hvort er valdameira, Alþingi Íslendinga eða starfshópur ráðherrans? Það er enginn að spyrja starfshópinn álits á því hvort frumvarpið eigi að koma fram eða ekki. (Forseti hringir.) Alþingi er búið að biðja um að frumvarpi um hagsmunafulltrúa aldraðra verði komið til þingsins og það er það sem á að gera. Það er ekki starfshópsins að hafa skoðun á því og ekki heldur hæstv. ráðherra, svo það liggi fyrir.