154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[19:35]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég held að það gæti ákveðins misskilnings hérna sem felst í því að það er eðlilegt að ráðherra hverju sinni meti hvaða mál ráðherrann kýs að koma með fyrir þingið. Í þessu tilfelli var samkvæmt þingsályktuninni skipaður starfshópur til að leggjast yfir þetta mál og það var mat starfshópsins sem ég sem ráðherra ákvað að fara eftir (Gripið fram í.) — ég er með orðið hv. þingmaður — að það væri ekki tímabært að ráðast í þetta fyrr en frekari gögn lægju fyrir þannig að það gæti orðið markvissara ef af yrði að koma á embætti hagsmuna fulltrúa eldra fólks og það væri skynsamlegt að koma markmiðinu með því fram með öðrum hætti. En eins og ég hef margítrekað sagt í ræðustóli Alþingis þá hef ég aldrei útilokað að þetta frumvarp komi fram á einhverjum tímapunkti en það er ekki tímabært líkt og ég hef greint hér frá.