154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[19:36]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Árangur fyrir lágtekjufólk, lágtekjuhópa, sagði hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra og var ánægður með það. Hann var einnig ánægður með að kjarapakki ríkisstjórnarinnar hefði skilað skólamáltíðum, sem er auðvitað mjög gott, og síðan var hann stoltur og ánægður með að það stæði til að endurskoða almannatryggingalögin og þá myndu kjör öryrkja stórlega batna. En hann lét ekki fylgja með að þetta yrði ekki fyrr en í fyrsta lagi 1. september 2025, sem sagt sennilega í byrjunartíð næstu ríkisstjórnar.

Ég spyr mig að því þegar hann talar hér um kjarapakka ríkisstjórnarinnar og láglaunahópa — ég spurði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hér áðan hvort í þessum pakka ríkisstjórnarinnar yrði séð til þess að öryrkjar og aldraðir í almannatryggingakerfinu fengju nákvæmlega sömu hækkun og samið var um í kjarasamningum nýlega og fengju hana bara strax þannig að þau væru jafn vel sett og aðrir sem eru í láglaunahópum. Ég hef ekki fengið svar við því og ítreka þetta: Finnst honum eðlilegt og ætlar þessi ríkisstjórnin virkilega að skilja þennan hóp eftir? Ef svo er þá er hún gjörsamlega og fullkomlega vanhæf.