vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, ég fór yfir árangur þessarar ríkisstjórnar þegar kemur að því að bæta kjör lágtekjuhópa og stend við það. Ég held að við getum verið sammála um það, ég og hv. þingmaður, að þriggja þrepa skattkerfi sem hér var tekið upp á síðasta kjörtímabili hafi skipt þar miklu máli, líka þær hækkanir sem hafa orðið á húsaleigubótum og barnabótum. Sú innspýting sem hefur svo verið í almenna íbúðakerfið, en einn þriðji af íbúðum sem byggðar eru á Íslandi eru einmitt vegna þess, þýðir að hægt er að leigja út húsnæði með ódýrari hætti fyrir hópa lágtekjufólks. Ég held því að það sé alveg ljóst að það hefur ýmislegt verið gert fyrir lágtekjuhópa. Það þýðir ekki að það megi ekki alltaf gera betur, þar veit ég að ég og hv. þingmaður erum sammála. Eitt af því varðar einmitt kjör öryrkja. Hér liggur fyrir og lá fyrir við framsögu málsins, þ.e. frumvarpsins um breytingar á örorkulífeyriskerfinu, að gert er ráð fyrir í frumvarpinu að gildistakan verði 1. september 2025. Hún átti að vera fyrr, það er alveg hárrétt. Hún átti að vera 1. janúar 2025 en það fór meiri tími í að undirbúa frumvarpið, eins og gengur og gerist, og við verðum að gefa okkur tíma eftir að frumvarpið er samþykkt hér á Alþingi til að ráðast í breytingar á þeim kerfum sem við erum að breyta til þess að Tryggingastofnun ríkisins sérstaklega hafi nægan tíma til að undirbúa málið. Þess vegna erum við að fresta þessu til 1. september 2025 miðað við hvað var áður búið að boða í þeirri fjármálaáætlun sem var samþykkt á þinginu í fyrra. Þannig að það er nú ástæðan fyrir því, hún er framkvæmdalegs eðlis og af praktískum ástæðum.