154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[19:41]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Jú, ég næ þessu. En að nota þetta á sama tíma til að fegra fjármálaáætlunina um 10 milljarða; er þá ekki bara kjörið og getur ekki hæstv. ráðherra svarað því núna — það virðist vera alveg gjörsamlega vonlaust að fá fjármálaráðherra til þess en ég vona að ekki sé vonlaust að fá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til að svara þessu: Hvers vegna í ósköpunum eru fjármunir ekki notaðir núna strax til að sjá til þess að eldri borgarar og öryrkjar fái umsamda launahækkun sem samið var um í kjarasamningum fyrir stuttu síðan og fái hana bara strax frá og með 1. júní, eða í síðasta lagi 1. júlí? Ekki veitir af, vegna þess að það segir sig sjálft að ef láglaunafólk og aðrir þurfa á þessu að halda þá þurfa öryrkjar og aldraðir, þeir sem verst standa, pottþétt á þessu að halda.