154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[19:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um tillögu til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar sem við í Flokki fólksins og Píratar stöndum að. Samfylking og Viðreisn hafa lýst yfir að þau muni greiða því atkvæði. Hvers vegna erum við að fjalla um þessa vantrauststillögu og á hvaða forsendum?

Þessi vantrauststillaga er komin fram vegna þess í fyrsta lagi að þingsályktunartillaga Flokks fólksins um hagsmunafulltrúa aldraðra var samþykkt einróma á Alþingi en ráðherra fór ekki eftir þeirri samþykkt heldur kom á símalínu og pósthólfi á island.is sem staðgengli hagsmunafulltrúans. Bara þetta eitt sýnir virðingarleysi ráðherra fyrir einróma samþykki Alþingis um að aldrað fólk hafi sinn talsmann til viðtals en ekki símalínu og pósthólf sem engu skila og Alþingi samþykkti aldrei að yrði staðgengill fyrir hagsmunafulltrúa aldraðs fólks.

Annar ráðherra fór ekki að lögum að áliti umboðsmanns Alþingis og hefði hugsanlega skapað ríkinu milljarða skaðabótaskyldu vegna þessa. Ákvörðun matvælaráðherra um að banna tímabundið hvalveiðar í sumar var ekki í samræmi við lög. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis. Umboðsmaður Alþingis segir í áliti sínu að bannið hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar og að bannið hafi verið fyrirvaralaust og verulega íþyngjandi. Þá telur umboðsmaður að reglugerð um hvalveiðibann hafi ekki samrýmst kröfum um meðalhóf og þar af leiðandi ekki verið í samræmi við lög að þessu leyti.

Sá þriðji af ráðherrateyminu fer ekki eftir stjórnsýslulögum og selur föður sínum hlut í banka og finnst það bara allt í lagi.

Það er alveg með ólíkindum hvernig þessi ríkisstjórn hagar sér og það er hægt að telja endalaust upp klúður á klúður ofan hjá henni. Að framansögðu er þá einhver hissa á því að Flokkur fólksins og Píratar hafi lagt fram vantrauststillögu á þessa gjörsamlega vanhæfu ríkisstjórn?

Ríkisstjórninni hafa verið mjög mislagðar hendur í öllum þeim málum sem virkilega varða þá verst settu í okkar þjóðfélagi. Burt séð frá því hverjir hafa staðið sig virkilega illa í ráðherrastólum, og það með brotum á lögum og reglum, þá er þessi ríkisstjórn gjörsamlega heillum horfin og hefur ekki traust almennings. Þetta er ríkisstjórn sem hlustar ekki á ákall þjóðarinnar um að útrýma fátækt, hvað þá sárafátækt. Hún hefur brugðist þeim heimilum sem búa núna við stökkbreytt húsnæðislán og einnig þeim fjölda sem er á leiðinni í greiðslukreppu vegna óbærilegrar hækkunar á afborgunum af íbúðalánum sínum. Að draga á eftir sér lappirnar í öllum þessum málum er varða aldrað fólk, veikt fólk og þá sem eru að reyna að tóra á lægstu launum eykur stórlega á neyð almennings. Þeir ríku verða bara ríkari í þeirra boði og það á kostnað þeirra verst settu.

Þetta er illa veik ríkisstjórn og ráðleysi hennar í þeim málum þar sem hvert klúðrið á eftir öðru hefur átt sér stað sýnir svo ekki verður um villst að hún er í einhvers konar doðakasti gagnvart sjálfri sér, búin að gefast upp við að stjórna af einhverju viti, dregst áfram af gömlum vana og þá bara til að hafa völd og hanga á ráðherrastólum.

Við erum með veikt fólk í fátækt, jafnvel sárafátækt, sem á ekki fyrir mat eða öðrum nauðsynjum og er samt að borga skatta en ætti auðvitað að vera skattlaust. Allt þetta í boði ríkisstjórnarinnar. Síðan er bætt ofan á skattprósentuna keðjuverkandi skerðingarskatti sem getur orðið allt að 80% af heildarskatti. Þarna er verið að skerða eldri borgara og öryrkja. Á sama tíma borga þeir sem eru eingöngu með fjármagnstekjuskatt ekki einu sinni útsvar í boði ríkisstjórnarinnar. Þessi útvaldi hópur ríkisstjórnarinnar fær samt alla þjónustu sveitarfélaga án þess að borga krónu til þeirra fyrir hana.

Síðan er það sorglegt að þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma kemur alltaf upp kostnaður hjá ríkisstjórninni, að þessi hópur kosti svo mikið, að öll framúrkeyrsla ríkisins og sveitarfélaga sé bara fötluðu fólki að kenna, sem er auðvitað sorglega kolrangt og sýnir hug hennar til fatlaðs fólks. Það er alveg með ólíkindum að hún skuli alltaf draga langt á eftir sér lappirnar í málefnum þeirra sem virkilega þurfa á hjálp hennar að halda.

Það fer ekki á milli mála að þeir verst settu í okkar samfélagi eru ekki í forgangi hjá þessari ríkisstjórn. Fyrir það eitt og sér er hún kolvanhæf. 154 fatlaðir einstaklingar yngri en 67 ára eru hreppafluttir á hjúkrunarheimili fyrir aldrað fólk gegn vilja sínum; er hægt að leggjast lægra í lágkúrunni gagnvart þeim sem geta ekki varið sig vegna veikinda? Nauðungarvistaðir inni á stofnun þar sem meðalaldurinn er yfir 80 ár. Hver vill vera þar? Enginn hér inni nema e.t.v. ríkisstjórnarliðar. Það er alveg á hreinu. Um 100 einstaklingar eru vistaðir í dýrasta úrræði sem fyrirfinnst og það inni á sjúkrastofnunum, vegna vanhæfis ríkisstjórnarinnar í málefnum eldra fólks, og kallaðir hinu ömurlega nafni fráflæðisvandi. Á sama tíma er ekkert spítalapláss fyrir annað veikt fólk og það sett í geymslur á göngum, ef það fær þá þjónustu yfirleitt. Kulnun í starfi og uppgjöf er síðan það sem blasir við hjá heilbrigðisstarfsfólkinu vegna álags og aðstöðuleysis.

Hugsið ykkur að við erum með svo vanhæfa ríkisstjórn að hún getur ekki einu sinni svo árum skiptir samið við sjúkraþjálfara með tilheyrandi kostnaði fyrir veikt og slasað fólk sem hefur ekki einu sinni efni á sjúkraþjálfun lengur — með hvaða afleiðingum? Jú, fólkið verður óvinnufært.

Þetta er ríkisstjórn sem ekki nema örfáir treysta. Hún hefur gengið þannig fram af eigin þjóð að hún getur á engan hátt stutt hana. Þetta endurspeglast ekki hvað síst í heilbrigðiskerfinu sem er á heljarþröm í boði hennar eins og hér hefur komið fram. Þá er nær vonlaust að komast að hjá læknum á heilsugæslu eða neyðarmóttöku ef á þarf að halda vegna veikinda heldur er fólk hvatt til að vera ekki að trufla kerfið. Forystumenn ríkisstjórnarinnar lýsa í raun algjöru frati á þjóðina með aðgerðaleysi sínu í öllum þessum málum sem varða þjóðina svo miklu og sýna svo ekki sé um villst að þeim er algjörlega sama um almenning og þá sérstaklega veikt og aldrað fólk.

Þjóðin hefur sýnt það í undanförnum skoðanakönnunum að hún treystir ekki þessari ríkisstjórn og gjáin milli stjórnarmeirihlutans og fólksins í landinu breikkar og breikkar. Því er það mitt mat að þessi ríkisstjórn sé hreinlega í hópi lélegustu ríkisstjórna allra tíma og á því vantraust fyllilega skilið. Vonandi sér hún það sjálf og samþykkir þessa vantrauststillögu og að kosningar verði í haust.

Klúðrið í sölunni á Íslandsbanka var og er áfall fyrir þessa ríkisstjórn. Og ekki hefur hún lært af því klúðri, öðru nær, hún heldur áfram að selja banka sem í sjálfu sér er fáránlegt og þar af leiðandi næg ástæða til vantrausts.

Tveir stjórnarflokkar, Flokkur fólksins og Píratar, leggja þessa vantrauststillögu fram en ég trúi ekki öðru, og það hefur líka komið í ljós, að hinir stjórnarandstöðuflokkarnir, Viðreisn og Samfylkingin, muni samþykkja hana. Ég held að þjóðin yrði glöð ef hún yrði samþykkt og við fengjum kosningar í haust. Er rétt að halda lífi í og styðja lélega og gjörsamlega óstarfhæfa og óhæfa ríkisstjórn áfram? Nei. Mín skoðun er sú að af tvennu illu þá verðum við að treysta frekar kjósendum í kosningum til Alþingis í haust en þessari ríkisstjórn. Þessi vantrauststillaga er komin fram til að hjálpa ríkisstjórninni að sjá villu síns vegar og til að hjálpa þeim stjórnarþingmönnum sem eru að missa þolinmæðina gagnvart henni að sjá villu síns vegar og þá um leið kanna hvort hún hefur í raun einhvern stuðning í sínu eigin liði.

Þingsályktunartillaga Flokks fólksins um hagsmunafulltrúa aldraðra var samþykkt hér á Alþingi eins og áður hefur komið fram. Ráðherra fór ekki eftir þeirri samþykkt heldur kom á símalínu og pósthólfi og reyndi að verja það hér áðan að þetta væri í lagi. Þetta er ekki í lagi. Þetta var samþykkt. Og að reyna að klína því á einhverja nefnd að vegna þess að einhver starfshópur kom með einhverja aðra tillögu, sem hlýtur þá að hafa verið tillaga sem honum var þóknanleg, þá sé hægt að hunsa hagsmunafulltrúa aldraðra og það sé hægt að gera það einhvern tímann seinna; það var ekki samþykkt einróma á Alþingi. Það var samþykkt að koma þessu á. Það var samþykkt að ráðherra ætti að sjá til þess að það yrði komið á hagsmunafulltrúa aldraðra, aldrei neitt annað. En það er alltaf eins og við manninn mælt, ríkisstjórnin fer ekki að þeim lögum sem samþykkt eru hér, hún fer bara sínar eigin leiðir. Því miður sýnir það enn og aftur hversu vanhæf hún er.

Við höfum heyrt það hérna og við höfum fengið skýr svör um það bæði frá hæstv. fjármálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra að það er einn hópur sem er þeim ekki þóknanlegur og það eru aldraðir og öryrkjar. Þeir sem eru að reyna að tóra í almannatryggingakerfinu eiga einhvern veginn alltaf að fá allar hækkanir eftir á. Og það sem er merkilegast við þessar hækkanir er að ef það tekst að semja um 23.000 kr. hækkun á almennum vinnumarkaði þá tekst ríkisstjórninni einhvern veginn alltaf um næstu áramót með einhverjum furðulegum vísitöluútreikningum og fölsunum að ná því niður um nærri helming. Þetta hefur þessi ríkisstjórn gert kerfisbundið þau ár sem ég er búinn að vera hérna á þingi og hún hefur séð til þess að með því aukist kjaragliðnun ár frá ári. Á hverju einasta ári verður verra og verra fyrir þá verst settu að eiga til hnífs og skeiðar.

Í nýlegri könnun sem ég sá kom t.d. fram að það voru eiginlega ekki nema 13% sem styðja Bjarna Benediktsson sem forsætisráðherra. Ég held að þar hafi náðst í einhvern innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt þessu myndi maður segja að 87% treystu honum ekki.

Þetta er ríkisstjórn sem hefur verið við völd í sjö ár eins og komið hefur fram. Á síðustu sjö árum hefur hún séð til þess að fátækt fólk hefur farið úr fátækt í sárafátækt, að heilbrigðiskerfið er komið í svo skelfilega stöðu að maður fær eiginlega skelfingarhroll við þá tilhugsun að þurfa að leita til þess. Að við skulum eiginlega fá það auglýst frá heilbrigðiskerfinu að mæta ekki á heilsugæsluna. Og ef þú mætir síðan þá kemur: Ekki mæta og helst ekki láta sjá þig á bráðamóttökunni.

Það er ekki nema örstutt síðan gerð var tilraun, sem ég varð vitni að, til að ná að komast til læknis á heilsugæslu. Hver voru skilaboðin? Jú, þú þarft að hringja á ákveðnum degi, snemma um morguninn. Það er tveggja klukkutíma gat. Við getum ímyndað okkur aldraðan, illa veikan einstakling sem er rúmfastur. Hann þarf að hanga í símanum upp á von og óvon í þessa tvo tíma, númer 100/200 í röðinni, og vona að hann komist að og vona líka á sama tíma að það sé ekkert sem trufli hann, að hann þurfi ekki að fara á salerni eða gera eitthvað vegna þess að þá gæti hann misst af þessu samtali. En ef hann kæmist inn þá fengi hann tíma eftir svona einn og hálfan mánuð. Það tæki mögulega tvo til tvo og hálfan mánuð að fá lækni. En ef hann missti nú af þessu litla gati til að ná sér í tíma hjá lækni þá gæti hann reynt aftur eftir mánuð og lent í nákvæmlega sömu aðstöðu. Hugsið ykkur. Hver vill vera í þannig málum?

Orkuleysi þessarar ríkisstjórnar lýsir sér mjög vel í því að það er ekkert framkvæmt, það er ekkert að ske í orkumálum þjóðarinnar, eins og hefur komið fram, ekki nokkur skapaður hlutur. Það er verið að keyra á dísilvélum vegna þess að ákveðin fyrirtæki vantar orku. Ég held að það myndi ekki einu sinni duga til að koma orku í þessa ríkisstjórn að keyra hana á dísil. En á sama tíma og kemur fram hjá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann sé stoltur af málum er varða umhverfisöryggi og loftslagsmál og hvað sé verið að gera í þeim málum þá erum við á fullri framkvæmd hér í Straumsvík að hefja borun og niðurdælingu á koltvísýringi og eitruðum lofttegundum sem á að flytja frá Evrópu til að dæla þar niður. Þar á að dæla niður 2.500 lítrum á sekúndu og blanda þessu ógeði saman við hreint vatn til að bora og dæla niður á nokkur hundruð metra dýpi — á jarðskjálftasvæði, á eldgosasvæði, á sprungusvæði. Það hefur komið fram að þegar verið var að gera þetta á Hellisheiði var allt að fjögurra stiga jarðskjálfti vegna þessa. En þeir ætla ekki einu sinni að láta það duga, þeir ætla líka að leyfa þetta í Krýsuvík, við Kleifarvatn, þar sem er meira að segja spáð að gæti orðið eldgos.

Í þessari ríkisstjórn virðist hvorki hægri né vinstri höndin vita hvað hin er að gera og einhvern veginn virðast allir baslast áfram og reyna að sannfæra sjálfa sig um að þetta sé alveg geggjuð ríkisstjórn. Það sem er merkilegast við þetta er að þau voru að hæla sér af því í ræðu hvernig þau hafa staðið sig gagnvart Grindavík. Það er ekkert til að hæla sér af. Því miður, eins og ég óttaðist og benti á, gengu þau þannig fram að það er fullt af fólki að lenda á milli skips og bryggju í húsakaupunum þar. Það er verið að ganga svo fram af ungu fólki sem er að reyna að kaupa sér sína fyrstu íbúð að allt sparifé þeirra er tekið af þeim. Þau eru komin í 10 millj. kr. mínus ef þau eiga að reyna að ganga frá sölu á þeirri íbúð sem þau eiga þar. Er þetta lausn? Nei. Þess vegna er búið að boða til mótmæla á Alþingi á morgun. Fólkið er búið að fá nóg.

Ég held líka að ef þau gætu, veika fólkið, öryrkjarnir, aldraða fólkið sem er þarna úti að reyna að tóra, eins og ég hef bent á — maður hittir á einstakling sem spyr mann: Ef ég fæ 360.000 kr. útborgað og þarf að borga 330.000 kr. í leigu, hvernig á ég að lifa af? Og þegar ég er búinn að borga allt sem ég þarf að borga fyrir utan leiguna þá á ég við bestu aðstæður 1.200 kr. á dag til þess að lifa af. Það er ömurlegt til þess að hugsa. En þetta er staðan eftir nærri sjö ára starfsemi þessarar ríkisstjórnar, ríkisstjórnar sem einhvern tímann sagði, og forsætisráðherrann þar, að þeir sem væru að bíða í fátækt ættu ekki að bíða lengur, að þeir sem lifðu við fátækt, að þeirra tími væri kominn og það væri ekki verjandi að láta þá bíða eftir réttlætinu lengur. En staðreyndin er sú, eins og við höfum komið að, að þessi hópur mun bíða eftir réttlætinu lengur. Það er búið að fresta réttlætinu til 1.september 2025, hluta af því. Það er ekki verið að tryggja að þær kauphækkanir eða launahækkanir sem hafa verið skili sér til þessa hóps og aldraðir einstaklingar hafa ekki fengið krónu aukalega frá þessari ríkisstjórn, ekki eina krónu öll þessi sjö ár.