154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[20:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Ég er alveg innilega sammála honum. Það var samþykkt hér á þingi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2020, ganga bara frá því og klára þetta, sem enn hefur ekki verið gert og ekki heldur viðaukann. Ég spurði að því í umræðunni á sínum tíma sem við tókum við félags- og vinnumarkaðsráðherra og benti honum á að við eigum að byrja á því, vegna þess að nú á að endurskoða örorkukerfið og ef það væri búið að lögfesta samninginn og viðaukann væru kæruleiðirnar komnar, þá væru allar kæruleiðir komnar af stað. Með því væri séð til þess að þeir sem málið varðar geti kært allt það sem ríkisstjórnin og stjórnsýslan eru að gera sem veldur hindrunum gagnvart fötluðu fólki. En þeir vilja ekki gera þetta og ætla sér ekki að gera þetta. Maður heyrir það alveg gjörsamlega og ég sé það ekki fyrir mér að þessi ríkisstjórn muni nokkurn tímann ná því fram að fara þá leið.

Svo vil ég benda á annað; að valda fólki skaða, t.d. með fátækt. Það er búið að sanna það og gerð var könnun í Bretlandi sem sýndi að konur sem lifa í viðvarandi fátækt missa nærri áratug af ævi sinni. Það er margsannað að það að láta fólk lifa í fátækt skaðar fólk. Ef ríkisstjórnin er að skaða fólk þá er hún vanhæf.