154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[20:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að nefna viðaukann við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar kristallast líka hvar tregðan er raunverulega. Ríkisstjórnin er til í að segjast styðja ýmis réttindi þangað til kemur að því að þessi réttindi geta bitið ríkisstjórnina sjálfa. Auðvitað er viðaukinn ekki eitt af því sem á að innleiða, alveg eins og ríkisstjórnin stendur sjálf þingmanna mest gegn því að Mannréttindastofnun sé sett á koppinn, vegna þess að með þessum verkfærum gæti fatlað fólk allt í einu farið að sækja sjálft réttlætið sem stjórnvöld neita því um. Það er spurning hvort við þurfum að leita í einhverja myndlíkingu. Það er verið að dingla réttindum eða úrbótum eins og gulrót fyrir framan fólk og svo alltaf þegar hún er innan seilingar er henni kippt frá og sagt: Heyrðu, við ætlum aðeins að hliðra þessu, eins og úrbótunum á örorkubótakerfinu. Auðvitað viljum við bæta örorkubótakerfið, við erum öll sammála um það, en ríkisstjórnin ætlar bara að hliðra því aðeins. Það heitir ekki niðurskurður hjá henni heldur hliðrun og verður þess valdandi að þetta kerfi kemst ekki á laggirnar fyrr en í tíð næstu ríkisstjórnar. Gulrótinni er dinglað og svo er henni kastað inn í næsta kjörtímabil. Það að segjast vilja eitthvað, telja fólki trú um að ríkisstjórnin standi með einhverjum málefnum og einhverjum þjóðfélagshópum en standa svo ekki við það; það er þess vegna sem við vantreystum þessari ríkisstjórn. Þess vegna á að samþykkja þessa tillögu, vegna þess að svona hegðun er skaðleg, grefur undan trú á stjórnmálunum og kerfinu öllu og er bara mannfjandsamleg.