154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[20:11]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Já, ég er innilega sammála honum. Vanhæfi þessarar ríkisstjórnar er algjört og sérstaklega í málefnum þeirra sem verst standa í okkar samfélagi. Ég get tekið sem dæmi þessa nýju endurskoðun almannatryggingalaganna. Það er verið að tala um að stórbæta kjör þessa hóps en ég benti á það að 45 ára einstaklingur fær 803 kr. hækkun á mánuði, 26 kr. á dag. Þetta er auðvitað stórkostleg bæting. Eins og ég sagði áðan þá hlýtur hann að hlaupa og hoppa af kæti og fara í eitthvert kaupæði fyrir 26 kr. á dag. Á sama tíma eiga þeir verst settu í þessu kerfi að fá 4.000 kr. hækkun, en það fylgir ekki sögunni að þegar þessir verst settu einstaklingar í örorkukerfinu, þeir sem eru fatlaðir frá 18 ára aldri, verða 67 ára þá missa þeir rúmar 30.000 kr. á mánuði. Það er gefið með einni hendi en tekið miklu meira til baka með hinni. Þetta sést og endurspeglast í því að eins og hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagði í andsvörum stóð til að gera þessa endurskoðun og láta hana virka frá 1. janúar en henni var frestað til 1. september. Ég kaupi ekki skýringuna á þeirri frestun. Ég er alveg með á hreinu að það hefði verið lítið mál að gera eitthvað í því máli og það er ekkert vandamál í sjálfu sér að setja þessa hækkun á þó að öllu verði frestað. Það væri hægt að keyra hana í gegnum þingið á augabragði og ég er viss um að við myndum flestöll styðja það að koma þessari hækkun á strax en klára svo hitt sem á þarf að halda seinna.