154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[20:41]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Vissulega erum við ósammála en ég held samt að við séum meira sammála en við höldum. Það má segja að við séum kannski ósammála um fjöldann, a.m.k. vil ég minnka fjöldann, ég veit ekki hver afstaða hv. þingmanns er þar.

Jú, þetta er hárrétt, það er engin stefna í þessum málaflokki, hann er algjörlega stjórnlaus. Þau hafa ekki getað mótað sér stefnu um hvað þau ætla að gera, m.a.s. varðandi aukna inngildingu. Það er mjög erfitt að auka inngildingu á Íslandi þegar við erum í þriðja sæti hvað varðar hlutfallslegan fjölda. Við ráðum ekki við þennan fjölda. Við getum ekki verið að taka við þessum gríðarlega fjölda og reynt að auka inngildingu á sama tíma. Ég er vissulega algerlega sammála því að það þurfi að auka inngildinguna og taka mjög vel á móti því fólki sem hingað kemur en það verðum við að gera með því að takmarka fjöldann og gera vel við þá sem hingað koma. Það er grundvallaratriði.

Þessari ríkisstjórnin hefur ekki farnast að móta stefnu og sjá til þess að tekið sé á þessum málum og mótuð skýr stefna vegna þess að þau eru svo ósamstiga. Þetta sér maður aftur og aftur í mikilvægum málum eins og þessu. Stefnan snýst um það að sitja á ráðherrastóli. Þessi ríkisstjórn stólaskipta endurspeglar það algerlega. Það er verið þvers og kruss að færa hérna til fram og til baka. Hæstv. forsætisráðherra í dag, hann stoppaði stutt við í utanríkisráðuneytinu, úr fjármálaráðuneytinu, og svo er hann kominn í forsætisráðuneytið. Fyrrverandi matvælaráðherra er komin í innviðaráðuneytið. Af hverju? Jú, af því að það var yfirvofandi vantraust á hana sem matvælaráðherra þar sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu sennilega ekki treyst sér til að styðja hana. Það lá algerlega í loftinu að þeir myndu ekki styðja hana. Þetta snýst um það að sitja á stólunum en gera ekki neitt.

Og í þessum mikilvæga málaflokki sem er efst á baugi í flestum löndum Evrópu, flestum ríkustu löndum heims, m.a.s. Bandaríkjunum líka (Forseti hringir.) þegar kemur að suðurlandamærunum þar, þá erum við algjörlega stjórnlaus í þessum gríðarlega mikla (Forseti hringir.) málaflokki sem lýtur að þjóðflutningum í heiminum.