vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Frú forseti. Það væri óskandi að ekki þyrfti að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina en hér erum við samt sem áður komin. Ríkisstjórninni er ekki treystandi til að klára kjörtímabilið. Það er í rauninni galið að hér hafi verið stjórnarkreppa á nokkurra vikna fresti allt þetta kjörtímabil. Við erum að upplifa eins konar, með leyfi forseta, „groundhog day“ hér í þinginu þar sem hlutirnir endurtaka sig trekk í trekk. Enn ein hrókeringin og uppstokkunin á ráðherrum kemur illa við þjóðina og þjóðarandann í þá átt að fólk er orðið þreytt á þessum skrípaleik.
Við í Pírötum tökum undir það. Við höfum ítrekað bent á að þessi ríkisstjórn fúnkerar ekki og hefur ekki styrkinn eða hæfið til að klára dæmið. Þetta er stórskaðlegt umhverfi og nú þegar er búið að afhjúpa getuleysi sitjandi ríkisstjórnar til að taka góðar ákvarðanir fyrir hönd þjóðarinnar. Samstöðuleysi, sundrung og úrræðaleysi einkenna þessa ríkisstjórn sem ber ábyrgð á þjóðarvagninum okkar. Því miður stefnir hann beinustu leið út af veginum.
En hver heldur um stýrið? Það virðist sem svo að hér starfi þrjár mismunandi stjórnir sem ekki geta starfað í samráði hver við aðra. Þau ná ekki einu sinni saman um litlu málin, hvað þá stóru. Þetta leiðir af sér að hér ríkir ákveðið stjórnleysi þar sem spilling, frændhygli og siðleysi fær að grassera með litlum sem engum afleiðingum. Í kjölfarið gerist ekkert í þeim mikilvægu málum sem vinna þarf hér í þinginu. Svo að dæmi sé nefnt hefur ríkisstjórnin m.a. státað sig af því að ætla sér að betrumbæta örorkulífeyriskerfið en fjármálaáætlunin sýnir svart á hvítu að það verður ekki gert fyrr en í besta falli á næsta kjörtímabili. Á meðan ríkisstjórnin er upptekin af því hvaða stofnanir eigi að sameina eða leggja niður sitja önnur eigi síður mikilvæg mál á hakanum.
Við þurfum að gera okkur grein fyrir afleiðingum þess að sópa málum út í horn. Staðan sem upp er komin í heilbrigðis- og geðheilbrigðismálum er grafalvarleg. Spítalinn hefur ekki undan að sinna sjúklingum og starfsfólkið er að bugast af álagi. Á meðan horfir starfsfólk spítalans upp á að stjórnendur landsins skiptast á stólum í stað þess að einbeita sér að því að bæta ástandið í starfsumhverfi þess. Til að bæta gráu ofan á svart er ótrúlega erfitt fyrir einstakling með geðvanda að fá viðeigandi aðstoð þar sem öll pláss eru full, biðlistarnir orðnir allt of langir og engin úrræði til staðar til að grípa viðkomandi. Þetta veldur svo í kjölfarið auknu álagi á bráðamóttöku þar sem það er eini viðkomustaðurinn sem hægt er að leita til sé innlögn á geðdeild ekki möguleg.
Það er ekki að furða að fólkið í landinu sé orðið þreytt á aðgerðaleysinu. Þjóðin er búin að horfa upp á hverja heimatilbúnu krísuna á eftir annarri innan ríkisstjórnarinnar koma í veg fyrir getu okkar sem þings og sem samfélags til að horfa fram á veginn og vinna í sameiningu að því að byggja hér upp velsældarsamfélag, sem ríkisstjórnin talar um í orði en sýnir ekki fram á á borði. Endalausar deilur þeirra koma í veg fyrir nauðsynlega uppbyggingu á innviðum okkar og samfélagi. Í staðinn er verið að keyra öll kerfin okkar í kaf með aðgerðaleysi og vanmætti. Innviðirnir okkar eru sagðir hangandi á lömunum og skýringin fyrir því sögð vera vegna aukinna umsvifa í útlendingamálum.
Það er þetta með ábyrgðina. Enginn vill taka hana í þessari stjórn. Ég tel að það sé orðið nokkuð augljóst að staðan sem upp er komin sé engum öðrum að kenna nema þeim sem sitja við stjórnarborðið og hafa gert það í ansi langan tíma. En það er svo merkilegt, þetta með að taka ábyrgð, það er svo miklu auðveldara að reyna að benda á einhvern annan. Við sáum þetta hér í gærkvöldi þegar við fórum að ræða loftslagsmálin við hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Þá fór hann aðallega að væla yfir því hvernig loftslagsstefna Pírata væri í stað þess að horfa á eigin aðgerðir í loftslagsmálum sem ekki eru að skila neinu.
Og hér áðan, þegar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kom til að halda ræðu, þá fannst honum alveg skelfilegt að við værum að halda ræður í 1. umræðu um mál. Ég get upplýst hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um að ástæðan fyrir því að ég held ræður í málum í 1. umræðu er að það eru mál sem eru að fara inn í nefnd sem ég sit ekki í. Það verða litlar breytingar á þingmálum eftir að þau koma út úr nefndinni. Mestöll vinna við þingmál gerist inni í nefndinni og ef ekki er búið að koma á framfæri skoðunum og ábendingum í 1. umræðu, hvað gerist þá? Þá eru litlar líkur á að tekið sé tillit til þess. Með því að koma með breytingartillögur í 1. umræðu, eins og ég gerði tvisvar hér í gær, þá tryggi ég líka að þær breytingartillögur hafi fengið þrjár umræður eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir. Nei, þetta finnst hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra vera bölvuð eyðsla á tíma þingsins.
Já, það er þetta með að líta í eigin barm, það er þetta með að taka ábyrgð á því sem viðkomandi er að gera. Þessi ríkisstjórn hefur verið við stjórnvölinn í nær sjö ár samfellt og ætla mætti út frá því að þau byggju yfir nægilegri haldbærri reynslu af því hvernig eigi að stjórna í lýðræðislegu samfélagi. Samt sem áður fá þau algjöra falleinkunn eftir störf sín á þessu kjörtímabili sem vonandi fer að líða undir lok.
Frú forseti. Afleiðingarnar af því að leyfa þessari stjórn að sitja áfram eru ekki afturkræfar. Það er á okkar ábyrgð að taka upp hanskann fyrir þjóðina. Krafa þjóðarinnar er skýr. Við viljum að þjóðfélaginu sé sinnt sómasamlega og að verkefnin sem kljást þarf við séu í höndum traustra aðila sem hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi frekar en eiginhagsmuni einstakra aðila. Ríkisstjórnin þarf að víkja.