vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni yfirferðina. Hún snerti á ýmsum málefnum sem skipta máli og dró fram hvernig þeim væri ekki sinnt nógu vel. Ég staldraði dálítið við hugtakapar sem hún notaði í byrjun ræðu sinnar, að hér væri veruleikafirrt ríkisstjórn sem væri fyrir vikið hætt að vera í tengslum við raunveruleikann. Ég held að það kristalli kannski kjarnann í því hvers vegna við erum hér að ræða vantrauststillögu en ekki einfaldan málefnalegan ágreining á milli flokka sem standa fyrir ólíka hluti í pólitík. Það er alveg eðlilegt að okkur greini á um hvaða leiðir ríkisstjórnin velur að einhverju markmiði en þegar hún er farin að sýna það sem hv. þingmaður kallar veruleikafirringu — í andsvari hér fyrr í umræðunni kallaði ég það að vera farin að trúa eigin spuna, sem loðir við marga málaflokka — þá er hún beinlínis orðin skaðleg. Þá fer hún að velja mjög frjálslega þá hluta aðgerðanna sem best líta út og þar eru húsnæðismálin væntanlega með skýrustu dæmunum. Það er ekkert mál að benda á uppbyggingu í almenna kerfinu og segja: Heyrðu, hér er búið að byggja upp alls konar úrræði fyrir fólk með lágar tekjur. Það er vissulega til mikilla bóta þó að það mætti gera meira. En sama ríkisstjórn, bara á sömu þingum, var að dæla í eftirspurnarhliðina og keyra upp verð á húsnæði hinum megin. Þannig að ef við skoðum heildarmyndina þá efast ég um að þessar aðgerðir samanlagt hafi verið til bóta. En hún velur alltaf þessar góðu (Forseti hringir.) til að réttlæta sjálfa sig. Þessi veruleikafirring er einmitt skaðleg og (Forseti hringir.) af því taginu að almenningur þarf betri ríkisstjórn.