vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Það kom reyndar engin sérstök spurning, þetta var meiri svona umræða. En já, ég stend mig ítrekað að því að sitja, hvort sem ég er að horfa á sjónvarpið eða hérna í þingsal, og ranghvolfa í mér augunum þegar ég hlusta á ráðherra ríkisstjórnarinnar lýsa raunveruleika sem ég bara kannast ekki við og veit að mjög margir kannast ekki við.
Húsnæðismálin eru mér náttúrlega mjög ofarlega í huga og þegar ég hef horft ítrekað á hvern fjármálaráðherrann á fætur öðrum koma og segja að staða heimilanna sé rosalega góð, að skuldir þeirra hafi lækkað o.s.frv., þá hugsa ég: Hvaða heimili eru þeir að tala um? Hvaða tölur eru þeir með? Og þegar þeir segja: Skuldir heimilanna hafa ekki aukist og vanskil hafa ekki aukist í bönkum, þá er maður alveg: Já, einmitt. Þeir eiga að vita að það er ekki hægt að komast í vanskil í bönkunum af því að það eru allir að skuldbreyta, taka yfirdrætti og gera allt þetta. En nú er fólk líka að komast á endastöð í því. Það er verið að ýta vandanum á undan sér.
Það er líka bara svo ofboðsleg afneitun sem felst í því að halda því fram að það þurfi einhverjar sérstakar rannsóknir eða niðurstöður til að sjá að 200.000–300.000 kr. aukning á útgjöldum vegna húsnæðis í hverjum einasta mánuði hafi áhrif á heimilin. Það bara blasir við. Það á ekkert að þurfa að útskýra það fyrir fólki. Það sjá það allir í hendi sér.
Það sem hefur líka verið að gerast núna er að áhrifin af þessu — það eru ekki bara, hvað eigum við að segja, ákveðnir afmarkaðir hópar sem hafa mjög lágar tekjur sem eru að lenda í erfiðleikum, það er líka hin svokallaða millistétt sem er að lenda í gríðarlega miklum erfiðleikum. Það er verið að búa til viðvarandi kreppu sem sér ekkert fyrir endann á og ríkisstjórnin er ekkert að gera.