vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Herra forseti. Já, það er þessi tilfinning þegar við fylgjumst með fulltrúum stjórnarflokkanna mæta og lýsa einhverjum raunveruleika sem við hin sjáum ekki. Er fólk sem er með flokksgleraugun það sterkt stillt endilega best til þess fallið að stýra ríkisstjórn, hvað þá þegar flokkarnir þrír í ríkisstjórn eru með það ólík gleraugu að þeir sjá ekki einu sinni sama raunveruleikann sjálfir? Þrjár ríkisstjórnir í landinu, hefur þetta verið kallað, stýra hver í sína áttina.
Staða heimilanna, fjárhagsstaða fólksins í landinu — nú getur ríkisstjórnin t.d. bent á að það er búið að lækka ýmsa skatta. Það er þetta með valfrjálsu upplýsingarnar. BSRB sagði í umsögn við síðasta fjárlagafrumvarp að ófjármagnaðar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar frá því að hún tók við 2017 væru komnar upp í rúma 50 milljarða á ári. Og maður spyr sig: Hvaða fólk er að njóta góðs af þessu? Af því að ég held að það sé ekki hin breiða miðja sem hv. þingmaður nefndi. Eitthvað hefur runnið til lægstu tekjutíundanna en ég held að það blikni í samanburði við það sem fer þangað sem síst skyldi, til þeirra sem nóg eiga. Aftur þarf að skoða heildarmyndina. Þessar ófjármögnuðu skattalækkanir annars vegar og síðan krónutöluhækkanirnar sem hv. þingmaður nefndi, hvar lenda þær? Hvar bíta þær þyngst? Aftur erum við á þessum stað. Ríkisstjórn sem sér ekki raunveruleikann fyrir það sem hann er, hún tekur ekki réttar ákvarðanir og hún er skaðleg.