vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Ég velti stundum fyrir mér hvort við hreinlega höfum það of gott hérna inni og séum búin að missa tengslin við raunveruleikann. Ég veit t.d. að ef ég væri enn á kennaralaunum þá væri ég í slæmum málum út af þessum vaxtahækkunum. Ég rétt slepp núna.
Hv. þingmaður nefndi líka skattalækkanir og annað þess háttar. Það sem er náttúrlega verst við þær er að þær hafa aukið við verðbólguna. Málið er að miðað við þann stóra póst og þann skaða sem vaxtahækkanirnar eru að valda heimilunum þá breyta svona litlar upphæðir mjög litlu í því samhengi. Það er ekki 10.000 kallinn eða 15.000 kallinn sem er að fara að breyta öllu fyrir fólk eins og staðan er, það eru 200.000–300.000 krónurnar sem eru að breyta öllu.
Það sem er svo slæmt er að þessar árásir á heimilin — sem ég vil bara kalla ofbeldi af því að heimilin eiga í rauninni ekki meiri von heldur en, hvað eigum við að segja, bara manneskja í húsasundi sem verið er að ræna. Þau geta ekki sagt nei, þau verða að afhenda peningana sína, alveg sama hver staðan er.
Þetta byggir á svo vafasömum hagfræðikenningum. Og þegar við erum búin að fá nóbelsverðlaunahafann, dr. Stiglitz, sem er búinn að koma og lýsa því hvernig seðlabankar heims séu að auka við verðbólguna með því að hækka vexti, þá ber okkur að hlusta. Íslensk heimili eru ekki hvítar mýs í tilraunum fyrir Seðlabankann til þess að kanna hvernig hann eigi að fara að málum. Og það er alveg greinilegt að aðferðin sem verið er að nota, hún er að valda skaða (Forseti hringir.) og sú einfalda aðgerð að lækka vextina myndi bara bæta gríðarlega mikið.