vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Að leggja fram vantraust er alvörumál og slík ákvörðun er síður en svo tekin af einhverri léttúð. Að mínu mati var samt ekki hjá því komist. Mig langar að ávarpa sérstaklega einn þátt sem ítrekað kemur upp í umræðunni og er raunar stór hluti þess að ég er einn flutningsmanna tillögunnar, þ.e. hvort vantrauststillagan verði ekki til þess að þjappa ríkisstjórninni saman og verði til þess að þau berji í brestina og komi sterkari til baka. Hvað það varðar tel ég að það yrði ekki svo slæmt. Fyrir mér er það alveg ljóst að núverandi staða, þar sem þrjár ríkisstjórnir starfa saman svo til samhengislaust, er óásættanleg.
Við höfum líka verið með forsætisráðherra sem hefur ekki sinnt því að vera verkstjóri ríkisstjórnarinnar. Þegar gagnrýni á verk ráðherra var lögð fram vísaði hæstv. þáverandi forsætisráðherra henni til formanna hinna flokkanna. Það er ekki að sinna verkefni forsætisráðherra. Nú tekur ekki betra við og sá hæstv. forsætisráðherra sem nú tekur við virðist hafa hrökklast í embætti forsætisráðherra eftir röð hneykslismála, fyrst úr embætti fjármálaráðherra og svo úr embætti utanríkisráðherra vegna þess að hæstv. þáverandi forsætisráðherra dreif sig skyndilega í forsetaframboð.
Forseti. Það blasir auðvitað við öllum sem vilja sjá það að við slíkt ástand er erfitt að una, að hér starfi þrjár minnihlutastjórnir sem varla koma nokkru í verk, þrjár minnihlutastjórnir sem geta ekki náð saman um sín eigin mál, hvað þá hlustað á það sem við í stjórnarandstöðunni höfum fram að færa, og er síðan óþreytandi í að kenna okkur í stjórnarandstöðunni um sínar eigin ófarir, t.d. með því að kvarta undan umræðu og kalla það málþóf við minnsta tilefni, án þess einu sinni að svara umræðunni. Þótt tillagan eigi litla möguleika þá verðum við að reyna, þó ekki nema bara til þess að hv. þingmenn stjórnarflokkanna taki fulla ábyrgð á verkum stjórnarinnar og það bjóðist ekki lengur að vísa bara á samstarfsflokkana. Valdi fylgir ábyrgð.
Forseti. Það er varla hægt að sjá fyrir sér verra ástand. Því má alveg þjappa þessari ríkisstjórn saman, hún færi þá kannski að gera eitthvað. Það myndi vonandi rjúfa kyrrstöðuna. Við getum ekki horft lengur upp á aðgerðaleysi í ótal málaflokkum. Hæstv. forsætisráðherra lýsti því hér áðan að tillagan væri fallin. Fátt gefur skýrar til kynna að þessi tillaga eigi hér fullt erindi. Vel má vera að tillagan verði felld, það er raunar nokkuð líklegt. En er virðingin fyrir Alþingi ekki meiri en svo að þingmenn ríkisstjórnarinnar hafi enga aðra skoðun en þá sem hæstv. forsætisráðherra hefur? Og ætlar sá sami forsætisráðherra að kvarta á sama tíma undan því að hér sé ekki stunduð málefnaleg umræða? Ef þingmenn eru almennt svo hafnir yfir umræðuna að engu máli skiptir hvað kemur hér fram þá er ekki úr vegi að velta því fyrir sér hvað hæstv. forsætisráðherra gæti þótt um 755. mál á 139. löggjafarþingi þar sem hæstv. forsætisráðherra sjálfur bar, ásamt þingmönnum eigin flokks, upp vantraust á þáverandi ríkisstjórn. Þessi tillaga er þó borin fram af þingmönnum tveggja flokka en er að öðru leyti samhljóða þeirri tillögu.
Hvað varðar traust þá sjáum við í könnun sem nýlega birtist í Heimildinni að einungis 15% treysta ríkisstjórninni á móti 70% sem gera það ekki. Við þurfum ríkisstjórn sem starfar saman. Við þurfum ríkisstjórn sem kemur hlutum í verk, ekki bara þegar hér er krísuástand heldur þurfum við að hafa hér stjórn sem kemur mikilvægum hlutum í verk þó að ekki séu hamfarir í gangi. Í mörgum þessara mála er þó samt ákveðið hamfaraástand.
Í loftslagsmálum vofa yfir hamfarir sem við sjáum sífellt fleiri merki um á heimsvísu. Við sinnum þeim málum ekki nóg. Ekki bara erum við ekki að ná neinu þeirra markmiða sem við höfum sett okkur um samdrátt í losun heldur erum við beinlínis að auka hana. Um loftslagsmál ríkir ekki traust.
Í húsnæðismálum höfum við horft upp á verð stökkbreytast með þeim hætti að búseta hér á landi er varla sjálfbær lengur. Unga fólkið getur ekki tryggt sér húsnæði. Aðstæður leigjenda eru með þeim hætti að mörgum þeirra hættir við heilsubresti vegna þess. Þrátt fyrir fögur áform er ekki nóg gert og umhverfið býður ekki upp á að við getum brugðist við því. Um húsnæðismál ríkir ekki traust.
Í orkumálum er raunverulega að skapast hætta á því að heimilin í landinu þurfi að fara að keppa við stórfyrirtæki um orku. Önnur fyrirtæki eru farin að brenna olíu til að afla sér orku á meðan við ráðstöfum orkunni hér m.a. til fyrirtækja í rafmyntagrefti. Um orkumálin ríkir ekki traust.
Í samgöngumálum hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins þurft að búa við gríðarlega aukningu einkabíla í kjölfar áætlana ríkisstjórnarinnar um orkuskipti án þess að því fylgi nokkur sókn í almenningssamgöngum, nema þá hugsanlega utan höfuðborgarsvæðisins. Um samgöngumálin ríkir ekki traust.
Svona má lengi telja. Málefni velferðar eru ófullnægjandi, sama má segja um umhverfismál, sama má segja um heilbrigðismál, sama má segja um útlendingamál, dýravelferðarmál. Það er löngu tímabært að hér verði brugðist við og við taki stjórnvöld með fullt umboð.
Stundum er sagt að fall sé fararheill. Það á sannarlega ekki við um þessa ríkisstjórn sem hóf kjörtímabilið á meðferð niðurstaðna kosninga sem nú hefur gert íslenska ríkið skaðabótaskylt. Sú meðferð misbauð kjósendum og almenningi öllum. Síðan þá hefur komið upp hvert málið á fætur öðru þar sem almenningi er misboðið. Hér ná varla að líða nema örfáar vikur milli hneykslismála, hvort sem það snýst um klúður við bankasölu, aðför að fjölmiðlafólki, brotna stjórnsýslu eða að landið líti skelfilega út á alþjóðavísu, byggt á ummælum utanríkisráðherra.
Auðvitað væri æskilegt að ekki kæmi til vantrausts en hér kemur ríkisstjórnin fram eins og hún tali einni röddu sem hún gerir ekki. Allt tal um málefni er hjóm. Margfalt betur færi á að við störfuðum saman, að hér væri samvinna um mál, að við virtum sjálfstæði Alþingis. Ég vil benda hæstv. forsætisráðherra á það, sem vék að þrískiptingu ríkisvaldsins í ræðu sinni hér áðan, að þrískipting ríkisvaldsins snýst ekki um að hér starfi þrjár ríkisstjórnir. Ef fólk starfaði hér af heilindum og gæfi stjórnarandstöðunni færi á að koma sínum málum á dagskrá og myndi síðan bara fella þau mál ef því svo sýndist en samþykkja annars, eins og sjálfsagt væri að stjórnarandstaðan gerði um sömu mál hv. þingmanna ríkisstjórnarinnar — en slíkt samstarf hefur ekki boðist. Mál stjórnarandstöðunnar fara nær öll beint í ruslið, sama hversu einföld, sjálfsögð eða gagnleg þau eru. Þau eru ekki einu sinni felld, þau fá bara að daga uppi og verða að engu. Því ætti það ekki að koma neinum á óvart að traustið sé lítið. Þess vegna erum við hér.
Það kann að vera óþægilegt þegar við í stjórnarandstöðunni tölum um mál. Slíkt tekur tíma. Stjórnin er svo viðkvæm fyrir því ef ráðherrar fá ekki að rúlla málum án umræðu í gegn að hæstv. ráðherrar og hv. stjórnarþingmenn fara að kveinka sér undan málþófi. Tilfellið er einfaldlega að við tökum vinnuna okkar alvarlega. Oftar en ekki kemur í ljós að á málum eru gallar. Til þess er umræðan að við finnum þessa galla.
Forseti. Mig langar að benda hv. stjórnarþingmönnum á að ef hér væru einhver mál til umfjöllunar önnur en þeirra eigin þá mögulega skapaðist hvati til að umræðan gengi hraðar fyrir sig. 108.323 kjósendur greiddu stjórnarflokkunum atkvæði í síðustu kosningum til Alþingis. Alls voru talin 203.978 atkvæði og því vissulega meiri hluti greiddra atkvæða. Á kjörskrá var hins vegar 254.681 kjósandi og Íslendingar allir eru 400.000. Það skýtur því skökku við að á grundvelli minni hluta þeirra sem eru á kjörskrá og enn minni hluta allra Íslendinga ætli stjórnin að taka öll völd án þess að taka nokkurt minnsta tillit til þess sem fulltrúar annarra kjósenda hafa fram að færa. Það er skrýtið lýðræði.
Forseti. Miðað við allt sem á undan er gengið er löngu tímabært að við fáum hér inn stjórnvöld með skýrt umboð til að ganga hér til verka í þau mál sem við svo sannarlega verðum að klára. Best væri að það yrði að undangengnum kosningum. Næstbesti kosturinn er að sú stjórn sem hér starfar taki sig á og starfi saman að þeim málum sem við verðum að klára. Hér verður því að ljúka sem blasir við, að landið er í raun stjórnlaust.