vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Hæstv. forseti. Ég vantreysti ríkisstjórninni og ég hef gert það lengi. Ég hef hlýtt á nokkrar ræður við þessa umræðu í dag og er undrandi yfir viðbrögðum sumra á ráðherrabekknum sem einkennast af einhvers konar fúllyndi, held ég að sé rétta orðið, og algerum skorti á skilningi á því hvernig við störfum hér á löggjafarsamkomunni, hvernig lýðræðisleg umræða virkar og hver réttur þingmanna er til að flytja tillögur, mæla fyrir þeim og fá umræður um þær hér í þingsal. Ég held að það sé alltaf hollt, hvort sem okkur er skipað til sætis í stjórnarandstöðu eða í flokkum sem styðja ríkisstjórn í landinu á hverjum tíma, að muna það að allir hafa hlutverki að gegna á hinu háa Alþingi. Það skiptir engu minna máli hér að þingmenn stjórnarandstöðunnar eigi sviðið, komi málum sínum á dagskrá, geti rætt þau og fái um þau atkvæðagreiðslu, að þau séu leidd til lykta í þessum sal eins og þau mál sem lögð eru fram af ríkisstjórn eða stuðningsmönnum stjórnarflokkanna.
Þetta vita auðvitað allir þingmenn í raun en geta samt ekki staðist þá freistingu að hnýta í umræðu sem þá sem hér á sér stað, kannski vegna þess að fólki finnst erfitt að hlusta á það sem þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa fram að færa, ég veit það ekki. Sannleikanum verður hver sárreiðastur. En kannski aðallega vegna þess að þessi ríkisstjórn, nýtt ráðuneyti hæstv. forsætisráðherra Bjarna Benediktssonar, verður til í umhverfi algjörs vantrausts á hana úti í samfélaginu. Það leiða skoðanakannanir í ljós og þær er að marka. Þær eru vissulega ekki niðurstöður alþingiskosninga, enginn er að halda því fram, en þær eru mælikvarði á afstöðu kjósenda og á andrúmsloftið í samfélaginu og eru kannski fyrst og fremst, þegar kemur að því að spyrja fólk almennt að því hvort það treysti tilteknum stjórnmálamönnum og/eða ríkisstjórnum, að leiða fram hvort þær ríkisstjórnir almennt njóti trausts. Ég held að það megi fullyrða að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar nýtur ekki trausts í samfélaginu. Þar með er ég ekki að gera lítið úr því að alþingiskosningarnar 25. september 2021 skiluðu okkur þessum meiri hluta og endurnýjuðu umboð þessarar ríkisstjórnar, alls ekki. En í öllum alvörulýðræðisríkjum þar sem almenn umræða er um stjórnmálin, um stöðuna, um það hvað hægt er að gera í því valdaumboði sem stjórnmálamenn hafa og hvað er ekki hægt að gera, þá væru allir stjórnmálamenn farnir að hugsa sinn gang mjög alvarlega af því að þetta snýst líka um hið siðferðilega vald til að hanga á völdunum.
Því miður virðast flestir, a.m.k. hæstv. ráðherrar í þessari ríkisstjórn, gefa lítið fyrir það og gefa lítið fyrir það almennt að það þurfi að huga að því umhverfi sem við erum að starfa í eða þeim skilaboðum sem koma frá almenningi í landinu. Mér finnst mjög mikilvægt að komast af þessum stað í stjórnmálaumræðu á Íslandi og líka bara fyrir Alþingi Íslendinga, að við getum tekið þessa umræðu í ljósi staðarins sem við erum stödd á og hvernig við ætlum að komast af honum. Ég er þeirrar skoðunar að besta leiðin til að gera það sé að leyfa kjósendum á Íslandi að kjósa til Alþingis í haust eins og tillagan sem hér er til umræðu segir og kveður á um. Það er alveg ljóst að ríkisstjórn Íslands, ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, er þrotið örendi og hún er án erindis. Við heyrðum það best þegar hæstv. forsætisráðherra lýsti því hver væru aðalmál hins nýja ráðuneytis. Það kom eiginlega best fram þar. Öll stóru orðin um að brúa bilið í samfélaginu, leita sáttaleiða, koma í veg fyrir skautun í stjórnmálaumræðunni og skapa stöðugleika í efnahagslífinu eru eiginlega marklaus.
Ég ætla ekki að gera lítið úr því að ríkisstjórn þessa meiri hluta, lengst af undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur, hefur fengið nokkur óvænt verkefni í fangið á þessu síðasta sex og hálfa ári. Heimsfaraldurinn sem geisaði í tæp þrjú ár reyndi auðvitað á. Hann reyndi á heimsbyggðina alla og hann reyndi að sjálfsögðu á innviði okkar samfélags eins og alls staðar annars staðar. Það var þó þannig að forystufólk ríkisstjórnarinnar gaf sérfræðingum eftir sviðið og upplifun almennings var að það góða fólk, sérfræðingarnir, bæri ekki síður ábyrgð á nauðsynlegum og erfiðum ákvörðunum en ráðherrarnir. Á pólitíska sviðinu í heimsfaraldrinum skapaðist þess vegna skjól sem er eiginlega vandfundið á þeim berangri sem hið pólitíska svið er. Í því skjóli voru heitin endurnýjuð eftir kosningarnar haustið 2021 á meðan talið var upp úr kjörkössunum í Norðvesturkjördæmi, í Borgarnesi nánar tiltekið. Og eins og fram hefur komið í þessari umræðu féll einmitt dómur í Mannréttindadómstól Evrópu um það mál í gær.
Efnahagsaðgerðirnar sem gripið var til á heimsfaraldursárunum reyndust þegar allt kom til alls eldsmatur á þenslu, verðbólgu og nær endalausar vaxtahækkanir. Afleiðingarnar má sjá í lífskjaraskerðingu þeirra efnaminni í samfélaginu. Ungt fólk er fast heima hjá foreldrum sínum, ef það er svo heppið að geta búið hjá foreldrum sínum. Leigjendur búa við okurkjör og þau sem festu kaup á húsnæði með lánum á breytilegum vöxtum glíma nú við þunga greiðslubyrði eða bíða þess að frystingu vaxtanna sé aflétt með tilheyrandi afleiðingum. Neyðarástand hefur í raun ríkt á húsnæðismarkaði árum saman en það er fátt sem bendir til þess að þessi stjórn hafi í sér dug til að grípa til ráðstafana sem duga til að efla húsnæðisöryggi fólksins sem byggir þetta land.
Í upphafi árs ritaði Bjarni Benediktsson, hæstv. forsætisráðherra, sig út úr ábyrgri og lýðræðislegri umræðu um málefni útlendinga hér á landi með færslu á samfélagsmiðli sem var ekkert annað en ósmekkleg samsuða útlendingaandúðar og hræðsluáróðurs. Þar fór fyrir lítið málflutningur þáverandi hæstv. forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, um að þetta stjórnarsamstarf henti svo vel til að koma í veg fyrir skautun og öfgar í stjórnmálaumræðunni. Og ef það er eitthvað sem er ófyrirgefanlegt í málflutningi hæstv. ráðherra Bjarna Benediktssonar og fleiri á hans vegum á síðustu misserum er það nákvæmlega þessi umræða um útlendingamálin sem byggir á þekktri aðferð hræðsluáróðurs og popúlisma.
Þegar kemur að jarðhræringum og eldgosum á Reykjanesskaga, forseti, þá hefur Samfylkingin og reyndar allir flokkar sem eiga sæti á Alþingi stutt frá upphafi þær aðgerðir sem nauðsynlegt hefur verið að grípa til vegna þessara náttúruhamfara og hrikalegra afleiðinga þeirra fyrir Grindvíkinga, heimili, fjölskyldur og fyrirtæki. Þær ákvarðanir hafa allar verið teknar í samstarfi stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðuflokkanna og við höfum verið sammála um að við sem samfélag öxlum saman þær byrðar sem við þurfum að bera vegna náttúruhamfaranna á Reykjanesskaga og við skiljum engan eftir. Það gerist í þverpólitísku samstarfi flokkanna hér á hinu háa Alþingi og þar hefur stjórnarandstaðan, Samfylkingin og aðrir flokkar í henni, ekki legið á liði sínu heldur stutt nauðsynlegar aðgerðir af heilum hug. Því er ekki hægt að halda því fram að þessi tiltekna ríkisstjórn geti ekki farið frá vegna þessara stóru verkefna. Þau hafa öll verið unnin í samstarfi hér á þingi og trúi ég að þau muni áfram vera unnin í samstöðu og samkomulagi. Því breyta ekki kosningar eða þingrof. Þess vegna er ekki hægt að skýla sér á bak við þessar náttúruhamfarir eins og mér fannst ríkisstjórnin á fyrra kjörtímabili hennar skýla sér á bak við heimsfaraldurinn, það verður bara að segjast eins og er. Erindi þessarar ríkisstjórnar er þrotið og því fyrr sem fólk gerir sér grein fyrir því, þeir hv. þingmenn sem styðja hana, ráðherrarnir og forystumenn þessara þriggja flokka, því betra.
Stundum verða stjórnmálamenn að geta hlustað. Þeir verða að geta hlustað á kröfur almennings. Þeir verða að geta lesið í samfélagið sitt og þeir verða að geta tekið ákvarðanir sem krefjast kjarks og framsýni og eru ekki endilega þannig að þær þjóni pólitískum hagsmunum þeirra sem einstaklinga á þeim tíma. Þannig styrkjum við lýðræðið, þannig styrkjum við pólitíska umræðu hér á landi og þannig gefum við íslenskum kjósendum og fólkinu í landinu tækifæri til þess að velja með lýðræðislegum hætti í alþingiskosningum fulltrúa sína á löggjafarsamkomuna og tækifæri til þess að skipta um ríkisstjórn í landinu.