vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Forseti. Hvers vegna vantraust? Í mínum huga er ástæðan þríþætt. Í fyrsta lagi samstöðuleysi ríkisstjórnarinnar og skortur á skýrri sýn. Í öðru lagi vanvirðing við þing og þjóð, vanvirðing við lýðræðið og stjórnskipan landsins. Í þriðja lagi ítrekuð lögbrot og spilling. Við gerðum grín að því í upphafi þessa kjörtímabils að ríkisstjórnin ynni eins og hér væru þrjár ríkisstjórnir í landinu en ekki ein. Framan af var þetta dystópískur brandari sem hafði þann tilgang að fá þau til að standa við stóru orðin, tryggja heildarsýn og heildarhugsun og vinna að hagsmunum almennings, ekki hvert í sínu horni og með stjórnsýsluna alla í enn dýpri sílóum en áður, heldur saman.
Þessi ríkisstjórn hóf kjörtímabilið á því að fjölga ráðuneytum í hvorki meira né minna en 12. Í greinargerð með þingsályktunartillögu þar að lútandi sagði, með leyfi forseta:
„Eins og sjá má eru þessar breytingar á skipan ráðuneyta síðast en ekki síst til þess fallnar að fella ósýnilega múra stofnanamenningar og stuðla að samvinnu, samráði og samhæfingu innan Stjórnarráðsins.“
Við bentum á það frá upphafi að þau gætu ekki unnið saman og að tilgangurinn með þessari stórfjölgun væri sá einn að tryggja öllum sæti sem það hefðu heimtað til að geta sæst á að vinna áfram hvert með öðru. Við töluðum um að allt tal um samvinnu, samráð og samhæfingu væri ótrúverðugt og göntuðumst með að hér yrðu þrjár ríkisstjórnir í landinu. En hvað gerðist svo? Smám saman fóru þau að viðurkenna þetta og gangast við þessum ávirðingum okkar. Því miður hefur það gengið svo langt að ráðherrar einstakra flokka í ríkisstjórninni firra sig ábyrgð á því sem aðrir ráðherrar gera, með vísan til þess að hver flokkanna þriggja fari með sína málaflokka og hinir hafi ekkert um það að segja þrátt fyrir að eiga að heita í ríkisstjórn saman.
Með þessum hætti og ýmsum öðrum hefur þessi ríkisstjórn, virðulegi forseti, að mínu mati orðið að ákveðinni ógn við okkar stjórnskipan sem er að stóru leyti byggð á stjórnskipunarvenju, þar sem stjórnarskráin okkar er hvorki lýsandi né sérstaklega ítarleg um það hvernig stjórnskipaninni skuli háttað. Enn og aftur kristallast það að við þurfum nýja stjórnarskrá.
Við þurfum starfhæfa ríkisstjórn, sagði hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Ríkisstjórnin hefur ekki sinnt því hlutverki sínu að vera ríkisstjórn. Þau hófu feril sinn á því að tryggja öllum stóla sem þau hafa síðan sett allan sinn tíma og alla sína orku í að halda. Framan af var það fyrst og fremst bara pirrandi og kannski svolítið pínlegt en nú er það farið að vera skaðlegt — skaðlegt hagsmunum þjóðarinnar. Þessi ríkisstjórn gengur út á stóla stólanna vegna, völd valdanna vegna. Þessi ríkisstjórn skeytir litlu um málefnin. Röðun í ráðherrastóla sýnir þetta svart á hvítu. Flokkur fyrrum forsætisráðherra, sem lengi naut hylli fyrst og fremst fyrir stefnu sína í umhverfismálum og dregur raunar nafn af henni, lætur sjálft umhverfisráðuneytið í hendur flokks sem fékk fullkomna falleinkunn fyrir stefnu sína í loftslagsmálum. Flokkur sem lengi naut hylli og fékk eflaust fjölmörg atkvæði út á stefnu sína í málefnum flóttafólks færir lyklavöldin að dómsmálaráðuneytinu aftur í hendurnar á flokki sem vísar konum sem búið hafa við líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi í áraraðir aftur í frekara ofbeldi, vonleysi og neyð, flokki sem vísar börnum úr landi til að búa á brotajárnshaugum þar sem þau búa við öryggisleysi, enga vernd gegn ofbeldi og misnotkun, hafa ekki aðgang að fæði og klæðum, að heilbrigðisþjónustu eða menntun, flokki sem sér enga aðra lausn á neyð þessara barna en að henda þeim fyrr úr landi til að koma í veg fyrir að þau venjist örygginu og hlýjunni á Íslandi áður en þau eru send aftur til vítisvistarinnar á götum Grikklands eða annars staðar — bara einhvers staðar annars staðar. Þar mega flóttabörnin gjarnan vera að þeirra mati.
Forseti. Það er ekki stöðugleiki að hafna nauðsynlegum lýðræðisumbótum. Það er ekki stöðugleiki að hafna gildum sínum, mannúð og framtíðarsýn. Það er enginn stöðugleiki fólginn í því að loka augunum fyrir umbreytingum sem eru að verða á heiminum. Það er afturhald sem við þurfum að segja skilið við, rétt eins og Danakonung á sínum tíma.
Ég tek undir orð hv. þm. Halldóru Mogensen í ræðu hennar hér áðan. Við stöndum frammi fyrir gríðarstórum verkefnum sem krefjast þess að hér sé sameinuð ríkisstjórn með skýra sýn. Loftslagsbreytingar, tæknibreytingar, vaxandi ójöfnuður, heilsufarsvandamál , ofbeldi og útskúfun, vaxandi skautun og skaðleg orðræða, stríð og tilgangsleysi — ef þau sem móta og framfylgja leikreglum samfélagsins eru ófær um að sinna því hlutverki af heilindum og í þágu almennings verður að skipta út. Þannig ríkisstjórn þarf hreinlega að víkja. Það er ástæðan fyrir þessari vantrauststillögu. Ríkisstjórnin verður að víkja.
Tilraunir þingmannameirihlutans til þess að gera lítið úr þessari tillögu og tilefni hennar eru enn eitt dæmið um virðingarleysi þeirra og skilningsleysi gagnvart lýðræðinu. Þessi ríkisstjórn virðist ekki alveg skilja hugtakið lýðræði. Ítrekað hafa þau talað um að kosningar séu á fjögurra ára fresti og virðist nokkuð skýrt af þeirra máli að þeim finnst almenningi hreinlega ekki koma við hvað þau gera þess á milli. Þið kusuð þetta og þetta eigið þið skilið. Þau kalla það pólitískan stöðugleika að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram þrátt fyrir að ágreiningurinn sé jafn mikill og djúpstæður og raun ber vitni. Það er sjálfsagt rétt að hafa það í huga í næstu kosningum. En það er ekki þannig sem lýðræðið virkar. Lýðræðið snýst ekki bara um kosningar á nokkurra ára fresti og lýðræðið snýst ekki bara um að það sé meiri hlutinn sem ræður, sama hvað.
Í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá var talið að undirskriftir 10% kjósenda væru nægilegur fjöldi til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um lög sem Alþingi væri búið að samþykkja. Undirskriftasöfnunin gegn sitjandi forsætisráðherra náði þessu lágmarki á tæpum tveimur sólarhringum á meðan tillaga stjórnlagaráðs gerir ráð fyrir þremur mánuðum — tveimur sólarhringum. Það ætti að vera hv. þingmönnum vísbending um alvarleika málsins og hversu einörð afstaðan er gegn þessari ríkisstjórn. Við erum ekki að tala um málefnalegan ágreining, eitthvað sem reglulegar kosningar eru einmitt hannaðar til að skera úr um. Við erum að tala um ríkisstjórn sem er mynduð á svo veikum grunni að tilvist hennar ein og sér varð til þess að rúmlega 41.000 kjósenda sáu ástæðu til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og lýsa yfir óánægju sinni. Hæstv. forsætisráðherra telur þetta þó ekki rýra umboð sitt til að stýra landinu, bara alls ekki neitt.
En talandi um umboð; í vikunni féll dómur Mannréttindadómstóls Evrópu, sem kom því miður lítið á óvart, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði gerst brotlegt við mannréttindasáttmála Evrópu með því fyrirkomulagi að Alþingi staðfesti eigið kjör. Á þetta reyndi eftir að vafi kom upp um lögmæti kosninga. En hver skar úr um lögmæti kosninganna? Jú, hinir nýkjörnu þingmenn, nýkjörnir í kosningum þar sem úrslit voru umdeild. Mitt fyrsta verk sem þingmaður í þessum sal var að greiða atkvæði gegn eigin kjörbréfi. Þetta þing situr ekki aðeins í skugga lögbrota og óstaðfestra talninga heldur jafnframt í skugga þeirra sterku ítaka sem löngu látinn Danakonungur hefur enn þá á íslenskri stjórnskipan. Við sitjum hér í krafti úrelts ákvæðis um að við alþingismenn skulum vera dómarar í eigin máli og ákveða sjálf hvort við séum rétt kjörin. Þetta fyrirkomulag samræmist ekki lýðræðishefðum nútímans eins og Mannréttindadómstóll Evrópu hefur núna staðfest. Við þurfum nýja stjórnarskrá.
Áður en Vinstri græn ákváðu að leggjast í eina sæng með flokkum sem barist hafa ötullega gegn stjórnskipunar- og lýðræðisumbótum í áraraðir hafði flokkurinn það að stefnu sinni að ljúka þeirri vinnu sem hófst með þjóðfundinum 2010 og klára nýju stjórnarskrána, byggða á tillögum stjórnlagaráðs. Uppi stóð svo ein, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi forsetaframbjóðandi, með tillögur að breytingum á stjórnarskrá sem hún hafði nú nýverið hafið samtal þvert á flokka um — sem hvað verður um nú? Er Bjarni Benediktsson, nýr ráðherra mannréttinda, að fara að klára það verk sem Katrín Jakobsdóttir hóf? Um það leyfi ég mér að efast. En kannski var það allt bara einhver sýndarleikur hvort eð er.
Forseti. Við getum ekki búið við ríkisstjórn sem nýtur ekki trausts þjóðarinnar, gerir ekki neitt og kallar það pólitískan stöðugleika. Hér hafa hæstv. ráðherrar keppst um að gera lítið úr þessari vantrauststillögu. Hæstv. forsætisráðherra hefur hins vegar sjálfur bæði flutt og stutt vantrauststillögur á ríkisstjórn þegar hann sat í minni hluta á þeim grundvelli að hann væri ósammála pólitískri stefnu ríkisstjórnarinnar. Það hefur hann gert þó að hann mótmæli því nú að slíkt eigi rétt á sér og vísi í að kosningar séu á fjögurra ára fresti og að það hvað hverjum finnist um stefnu ríkisstjórnarinnar þess á milli skipti bara engu máli. Kannski er þetta allt bara leikur fyrir honum og málflutningur hans breytist eftir því hvorum megin við borðið hann er. Kannski finnst honum það eðlilegt og finnst sú afhjúpun ekkert óþægileg. Það er alveg ljóst af máli hæstv. forsætisráðherra hér að honum þykir ekkert eðlilegra en að minni hlutinn sé stöðugt að reyna að fella ríkisstjórnina á grundvelli málefnaágreinings. Hann hefur reyndar verið í ákveðinni þversögn við sjálfan sig í þessari umræðu með því annars vegar að tala um að eðlilegt sé að uppi sé ágreiningur um málefnin og stefnu ríkisstjórnarinnar og að það sé ekki tilefni vantrauststillögu, og hins vegar að ekkert sé eðlilegra en að stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu vegna málefnaágreinings, það sé hennar hlutverk. Þessi vantrauststillaga hefur hins vegar ekkert með það að gera.
Það er auðvitað rétt að skiptar skoðanir um stefnu ríkisstjórnarinnar eru hluti af hinu lýðræðislega umhverfi, samfélagi þar sem við njótum þokkalegs tjáningarfrelsis. Við búum við fulltrúalýðræði og almenningur kýs á fjögurra ára fresti þá flokka og þá einstaklinga sem hann telur sig geta treyst til að stjórna landinu á meðan hann sinnir sínu daglega lífi. Ég er hins vegar ekki sammála því að það sé sjálfgefið að þingmenn þeirra flokka sem ekki tóku þátt í að mynda ríkisstjórnina séu alltaf á móti ríkisstjórninni og hennar verkum. Því er ég ekki sammála. Tillaga okkar hér er sett fram með ábyrgum hætti, þannig að verði vantraust samþykkt sé það miðað við að þingrof verði síðsumars og kosningar í haust.
Forseti. Við búum við viðvarandi stjórnarkreppu. Ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur gefið hugtakinu þrískipting ríkisvalds nýja merkingu. Í landinu starfa þrjár ríkisstjórnir með þrjár gjörólíkar stefnur. Það eina sem er sameiginlegt með þeirra stefnum er íhaldshugsunin um að best fari á því að ríkisstjórn sem mynduð var við upphaf kjörtímabils haldi velli út kjörtímabilið, sama hvað.
Traust almennings á Alþingi Íslendinga og á ríkisstjórninni var ekki í neinum methæðum áður. Þegar þessir þrír flokkar ákváðu að mynda ríkisstjórn saman var eitt af þeirra helstu markmiðum að efla traust á stjórnmálum. Nú er eins og það skipti bara engu máli. Og það er þetta virðingarleysi, þetta skeytingarleysi sem kristallast hvergi jafn skýrt og í þeirri ákvörðun forsætisráðherra, með bunka af óloknum verkefnum, að hlaupast undan merkjum og bjóða sig fram til forseta, mun þægilegra embættis, og svo með því að gera óvinsælasta ráðherra ríkisstjórnarinnar ef ekki Íslandssögunnar, óvinsælasta forsætisráðherra í heimi, að forsætisráðherra. Það sjá allir að þetta er löngu hætt að snúast um hagsmuni almennings. Þetta snýst um að ríghalda í völdin valdanna vegna.
Vantraust á stjórnmálum og lýðræðislegum stofnunum er gjarnan undanfari þess að lýðræðisleg gildi víki fyrir stjórnlyndum gildum, þjóðernishyggju, popúlisma. Og þetta er eitthvað sem við erum að horfa upp á. Við erum búin að sjá þetta gerast í mörgum löndum í kringum okkur, við höfum séð þetta gerast í sögunni. Það er raunveruleg hætta á því að þetta gerist.
Forseti. Traust skiptir máli.