154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:33]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni. Þessi vantrauststillaga snýst um valdmörk framkvæmdarvaldsins. Hún snýst um það hvort lög, gildandi lög og réttur í landinu, gilda einnig um ráðherra ríkisstjórnarinnar. Þessi vantrauststillaga tekur af allan vafa um það hvernig í rauninni löggjafanum þykir eðlilegt, ef þeim þykir það eðlilegt, að ganga af léttúð um gildandi lög í landinu.