154. löggjafarþing — 97. fundur, 17. apr. 2024.
vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
1038. mál
Virðulegur forseti. Eins og komið hefur fram í þó nokkuð mörgum ræðum í dag er hér sterkur stjórnarmeirihluti sem vinnur að mörgum verkefnum. Þau eru bæði á borðum okkar þingmannanna en eins hæstv. ráðherra. Það er því af nógu að taka og það er mikilvægt að við höldum okkur hér að verki. Við í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs styðjum þetta ríkisstjórnarsamstarf heils hugar en þessa vantrauststillögu engan veginn.