154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:34]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þingflokkur Viðreisnar styður þessa vantrauststillögu. Við erum í ágreiningi við þessa ríkisstjórn um málefnin og við höfum fylgst með vandræðagangi hér þegar kemur að ýmsum úrlausnarefnum sem mikilvæg eru fyrir bæði heimili og fyrirtæki landsins. Þjóðarhagur er að veði og það er löngu orðið ljóst að ósamlyndi í þessari ríkisstjórn er ekki að fara að færa okkur fram á veginn. Það fór langur tími í það hér hjá formönnum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að tala um að tíma þingsins væri betur varið en að ræða þessa vantrauststillögu. Af tíma þingsins höfðu menn ekki áhyggjur í síðustu viku þegar fella þurfti niður nokkra þingfundardaga vegna þess að stólaleikurinn endalausi og síendurtekni tók á sig nýja og nýja mynd. Þingflokkur Viðreisnar styður þessa vantrauststillögu.