154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það er óvenjulegt að tillaga stjórnarandstöðunnar komist til atkvæða. Í fyrsta sinn á þessu þingi, af 270 málum, greiðum við atkvæði um mál sem kemur frá stjórnarandstöðunni. Ég þakka annars ágætisumræður. Það er augljóst í umræðunni að stjórnarþingmenn voru sannfærðir um eigið ágæti og finnst mikilvægara en allt annað að klára það sem þeim finnst vera mikilvæg mál, verk sem þeir hafa haft ansi mörg ár á undanförnum kjörtímabilum til að klára, húsnæðismál t.d.

Ég varð þó fyrir þó nokkrum vonbrigðum að sjá ekki fleiri stjórnarþingmenn koma og tala fyrir sinni sannfæringu og útskýra fyrir kjósendum hvers vegna þeir kjósa að hunsa undirskriftir 41.000 manns um vantraust á forsætisráðherra. En þannig er nú það þessa dagana og sjáum til hvort einhver geri grein fyrir atkvæði sínu og rökstyðji mál sitt gagnvart vantrausti.